608. spurningaþraut: Jóladagsspurningarnar eru hér komnar

608. spurningaþraut: Jóladagsspurningarnar eru hér komnar

Fyrri auka­spurn­ing á jóla­degi!

Hér má sjá unga stúlku á frægri brú yfir Thames­fljótið í London. Myndin er tekin fyrir nokkrum ára­tugum. Hver er unga stúlkan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á norð­an­verðu Snæ­fells­nesi má telja fimm þétt­býl­is­staði. Nefnið þá alla fimm!

2.  Og hver a þessum stöðum er lengst úti á nes­inu, það er að segja vest­astur?

3.  Í hvaða Evr­ópu­landi er borgin Braga?

4.  Í nor­rænu goða­fræð­inni er getið um guð­inn Braga. Hvað er hans sér­svið í guð­dómnum?

5.  Hljóm­sveit ein íslensk var stofnuð árið 1988 og náði skjótt miklum vin­sældum með lögum eins og Á tjá og tundri. Hljóm­sveitin starf­aði svo mis­mikið seinni árin en 2018 hélt hún lokatón­leika sína með við­höfn í Hörpu. Hvaða hljóm­sveit var þetta?

6.  Anne-Sophie Mutter þýskur hljóð­færa­leik­ari. Hvað er hennar hljóð­færi?

7.  Við hvaða fjörð stendur þétt­býl­is­stað­ur­inn Grenivík?

8.  Árið 1953 hófst upp­reisn í landi einu. Framan af virt­ust upp­reisn­ar­menn ekki lík­legir til að ná árangri en svo fór þó að þann 1. jan­úar 1959 flúði helsti valda­maður lands­ins af hólmi og upp­reisn­ar­menn náðu völdum í land­inu. Þeim var þeir haldið síðan, þótt stundum hafi verið hart að þeim sótt. Hvaða land er þetta?

9.  Hvaða hljóm­sveit sló í gegn fyrir bráðum 40 árum með lögum eins og Sunday Bloody Sunday, New Year's Day og Pride (In the Name of Love)?

10.  Frá hvaða borg komu allir hljóm­sveit­ar­með­lim­irnir fjórir?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér er önnur mynd, tekin á frægri brú í Evrópu — ekki þó í London! Í hvaða borg er þessi brú?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Stykk­is­hólmur, Grund­ar­fjörður, Ólafsvík, Rif, Hell­is­sandur.

2.  Hell­is­sandur.

3.  Portúgal.

4.  Skáld­skap­ur­inn.

5.  Sálin hans Jóns míns.

6.  Fiðla.

7.  Eyja­fjörð.

8.  Kúba.

9.  U2.

10.  Dublin.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Stúlkan er Jodie Foster, ung að árum.

Brúin á neðri mynd­inni er Karls­brúin í Prag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár