601. spurningaþraut: Hoyle fann upp hugtak um kenningu sem hann var á móti

601. spurningaþraut: Hoyle fann upp hugtak um kenningu sem hann var á móti

Fyrri auka­spurn­ing:

Beina­grind af hvaða dýri (ekki alveg full­vaxta) má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Það þykir mikil list að baka smákökur sem nefn­ast Sörur. En hver var sú Sara eða Sarah sem kök­urnar eru kenndar við?

2.  Aðrar smákökur nefn­ast spesíur. Hvað þýðir orðið?

3.  Árið 1913 voru Nóbels­verð­launin í bók­menntum veitt í 13. sinn og í fyrsta skipti hlaut þau höf­undur sem ekki var upp­runn­inn í Evrópu eða Vest­ur­löndum. Hann hét Tagore og hvaðan var þessi Nóbels­höf­undur?

4.  Nokkrum árum áður, eða 1909, hafði fyrsta konan fengið Nóbels­verð­laun í bók­menntum. Hún var frá Svíþjóð og hét ...?

5.  Undir hvaða nafni var keis­ar­inn Charlemagne þekktur á Íslandi fyrr á tíð?

6.  Til hvaða heims­álfu telst ríkið Austur-Tímor?

7.  Í hvaða landi var Blóð-María drottn­ing?

8.  Hverjir kusu fyrsta for­seta Íslands árið 1944?

9.  Fred Hoyle var breskur stjörnu­fræð­ingur og þótti hinn merkasti vís­inda­maður. Hans er þó ekki síst minnst fyrir að hafa fyrstur manna notað ákveðið hug­tak yfir vís­inda­kenn­ingu, sem hann var reyndar sjálfur alveg á móti. Hann not­aði hug­takið til að byrja með í niðr­andi merk­ingu, en það var svo snagg­ara­legt og þótti lýsa svo vel kenn­ing­unni að það er nú alþekkt. Hvaða hug­tak er þetta?

10.  Hvaða tvö lönd liggja að inn­haf­inu Kattegat?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hvaða fáni er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sarah Bern­hardt leik­kona.

2.  Gömul mynt.

3.  Indlandi.

4.  Selma Lagerlöf.

5.  Karla­magnús.

6.  Asíu.

7.  Englandi. Bretland var þá ekki orðið til.

8.  Alþing­is­menn.

9.  Big Bang, eða Mikli­hvellur.

10.  Svíþjóð og Danmörk.

***

Á efri mynd­inni er beina­grind fíls, nánar til­tekið Asíufíls, en fíll dugar.

Á neðri mynd­inni er fáni Færeyja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár