596. spurningaþraut: „Drottinn, sem telur mín höfuðhár!“

596. spurningaþraut: „Drottinn, sem telur mín höfuðhár!“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mál­verkið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Daniel nokkur Craig lék James Bond í nokkrum bíó­myndum. Hve mörgum?

2.  Hvað heitir safnið þar sem mál­verkið af Mónu Lísu er haft til sýnis?

3.  Hversu mörg hár er maður með á höfð­inu — svona nokkurn veg­inn? Eru þau 10 þús­und, 100 þús­und, milljón eða 10 millj­ónir?

4.  Florence Griffith-Joyner var kona ein sem lést aðeins 38 ára gömul árið 1998. Hún var mikil afreks­kona í íþróttum og frægt met sem hún setti árið 1988 stendur enn. Í hvaða grein var það met sett?

5.  Í hvaða ríki Banda­ríkj­anna er borgin Tampa?

6.  Um árið 440 lék þjóð nokkur lausum hala víða um Evrópu og gerði ýmis her­virki. Konungur þjóðar þess­arar lengi vel var nefndur Atli. Hvað kall­að­ist þjóðin?

7.  Hvaða stór­slys varð 15. apríl 1912?

8.  Hver er almennt við­ur­kennt að hafi fundið upp ljósa­per­una?

9.  Á þessum degi árið 1692 voru 50 manns drepnir þar sem heitir Glencoe í Skotlandi og var þar um að ræða upp­gjör tveggja helstu valda­ætta í hálönd­unum. Spruttu af þessu þjóð­sögur og söngvar. Hinir myrtu voru nær allir af sömu ramm­lega skosku ætt­inni og báru ætt­ar­nafnið ... hvaða ætt­ar­nafn?

10.  Árið 897 gerð­ist sá fáheyrði atburður að lík valda­manns eins í Evrópu var grafið upp, ári eftir að hann lést, líkið var dubbað upp í fullan valda­skrúða, og svo var réttað yfir rotn­andi lík­inu með mik­illi við­höfn fyrir ýmsa meinta glæpi. Þessi valda­maður hét Formosus en hvaða emb­ætti gegndi hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fyr­ir­tæki notar lógóið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Fimm.

2.  Louvre.

3.  Um það bil 10 þús­und.

4.  100 metra hlaupi. Hún á raunar líka metið í 200 metra hlaupi kvenna, svo það telst líka rétt.

5.  Flórída.

6.  Húnar.

7.  Titanic fórst.

8.  Edison.

9.  MacDonald.

10.  Formosus var páfi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Kjarval mál­aði mál­verkið.

Wikipedia notar lógóið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár