595. spurningaþraut: Fyrir 783 árum var her á ferð, en hvaða her?

595. spurningaþraut: Fyrir 783 árum var her á ferð, en hvaða her?

Fyrri auka­spurn­ing:

Unga konan á mynd­inni hér að ofan er ein vin­sælasta dæg­ur­söng­kona heims um þessar mundir, og þykir einnig lið­tæk fyr­ir­sæta. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var fyrsta konan sem varð for­sæt­is­ráð­herra á Norð­ur­lönd­unum?

2.  Í hvaða landi er borgin Karachi?

3.  Eitt stærsta sprengigos (gjósku- eða vik­ur­gos) sem orðið hefur á jörð­inni á sögu­legum tíma varð árið 1362 í eld­fjall­inu ... já, hvað heitir eld­fjallið?

4.  Hver lagði undir sig Moskvu árið 1812?

5.  En hvaða her var hins vegar á ferð­inni tæpum 600 árum fyrr, eða árið 1238, og lagði þá undir sig Moskvu?

6.  Hvaða frum­efni er númer eitt í lotu­kerf­inu svo­nefnda og er raunar algeng­asta frum­efni alheims­ins?

7.  Hvaða ríki fram­leiddi bíla­teg­und­ina Trabant?

8.  Um og upp úr 2005 var starf­andi á Íslandi mikil gleði­hljóm­sveit sem kall­aði sig Trabant. Hver var aðal­söngv­ari þeirrar ágætu hljóm­sveitar?

9.  Land­náms­setrið svo­nefnda er rekið í bæ einum með miklum mynd­ar­brag og eru þar settar upp leik­sýn­ingar og margt annað til gagns og gam­ans. Í hvaða bæ er Land­náms­setrið rekið?

10.  Þetta Land­náms­setur er rekið af hjónum sem áður höfðu feng­ist við hitt og þetta í líf­inu. Nefnið að minnsta kosti annað hjón­anna fullu nafni.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl sá er sjá má á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Gro Harlem Brundtland.

2.  Pakistan.

3.  Öræfa­jök­ull.

4.  Napoleon.

5.  Her Mongóla.

6.  Vetni, hydrogen.

7.  Austur-Þýska­land.

8.  Ragnar Kjart­ans­son. Sjá hér snilld­ar­verk Ragnars og félaga:

9.  Borg­ar­nesi.

10.  Kjartan Ragn­ars­son og Sigríður Margrét Guð­munds­dóttir,

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er hin breska Dua Lipa.

Dua Lipa syngur og leikur

Sjá eitt af vin­sæl­ustu lögum hennar hér.

Á neðri mynd­inni er Jósef Stalín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár