Aukin framlög til heilbrigðismála og mun minni halli á ríkissjóði

Stefnt er að því að reka rík­is­sjóð með 169 millj­arða króna halla á næsta ári en aukið fjár­magn verður sett í mála­flokka eins og heil­brigð­is­mál og lofts­lags­mál. Fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar sem mynduð var um helg­ina var kynnt í dag.

Aukin framlög til heilbrigðismála og mun minni halli á ríkissjóði
Veru­legur halla­rekstur en þó minnk­andi Rík­is­sjóður verður rek­inn með tæp­lega 170 millj­arða króna halla á næsta ári, að því er kemur fram í fjár­laga­frum­varpi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Auka á fram­lög til heil­brigð­is­mála um 16,3 millj­arða á næsta ári og fara þeir meðal ann­ars í að fjölga hágæslu­rýmum um sex, end­ur­hæf­inga­rýmum um þrjá­tíu og koma á fót sér­stakri far­sótt­ar­deild í Fossvogi. Rúmir fimm millj­arðar eiga svo að fara í bygg­ingu hjúkr­un­ar­heim­ila.

Þetta kemur fram í kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar. Heild­ar­út­gjöld rík­is­ins á næsta ári nema 1.100 millj­örðum króna sam­kvæmt frum­varp­inu. 

Heil­brigð­is­mál eru enn sem áður langstærsti útgjalda­liður rík­is­ins, sam­kvæmt frum­varp­inu. Gert er ráð fyrir að 300 millj­arðar fari í mála­flokk­inn á næsta ári. Þar af fara tæpir 84 millj­arðar í Land­spít­al­ann. Útgjöld til heil­brigð­is­mála nema tæpum 866 þús­und krónum á mann, sem er meira en tvö­falt hærra en í næsta mála­flokk, mál­efni aldr­aðra, sem nema 274 þús­und krónum á hvern ein­stak­ling. 

Þó tekj­urnar séu hærri en stjórn­völd höfðu áður búist við, um 955 millj­arðar króna, verður rík­is­sjóður rek­inn með meira en 168 millj­arða króna halla. Mestar tekjur, eða 290 millj­arðar, koma úr virð­is­auka­skatts­kerf­inu, 218 millj­arðar fást með sköttum af tekjum ein­stak­linga og 107 millj­arðar vegna trygg­ing­ar­gjalda. Fjár­magnstekju­skattur skilar 32 millj­örðum, sam­kvæmt yfir­liti fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Halli rík­is­sjóðs verður meðal ann­ars nýttur til að hækka fram­lög til lofts­lags­mála um einn millj­arð króna, en mála­flokk­ur­inn var kynntur sem sér­stakt áherslu­mál rík­is­stjórn­ar­innar. Verða fram­lög til mála­flokks­ins þrettán millj­arðar á næsta ári, sam­kvæmt frum­varp­inu. Af þessum millj­örðum eru 600 millj­ónir ætl­aðar til að hraða orsku­skiptum í sam­göngum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár