594. spurningaþraut: Dauðinn á Níl. Eða var það Gíbraltar?

Fyrri auka­spurning:

Af hvaða tegund er hvuttinn á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Ray Davies heitir tónlistar­maður einn. Hvaða hljómsveit leiddi hann?

2.  Í hvaða landi er borgin Winnipeg?

3.  Af hverju er hún kunn í íslenskri sögu?

4.  Hvaða ráðherra­embætti gegnir Lilja Alfreðs­dóttir nú?

5.  Hvaða starfi gegndu þessir karlmenn allir á 19. öldinni: JohnTyler, James Polk, Zachary Taylor, Millard Fillmore og Franklin Pierce?

6.  Hver skrifaði bókina Dauðinn á Níl, eða Death on the Nile, sem oft hefur verið kvik­mynduð?

7.  Hvaða ríki eiga land að Gíbraltar-sundi?

8.  Hvað heitir fyrsti stafurinn í gríska staf­rófinu?

9.  Hver samdi hina svonefndu Brandenborgar-konserta?

10.  Mary Shelley hét kona ein sem uppi var á fyrri hluta 19. aldar. Hún samdi eina af frægustu skáld­sögum aldarinnar. Um hvað var hún?

***

Seinni auka­spurning:

Hvaða landflæmi má sjá hér að ofan á ögn óvenju­legan hátt?

***

Svör við aðalaspurningum:

1.  Kinks.

2.  Kanada.

3.  Þangað fluttist mikið af Íslendingum á 19. öld.

4.  Viðskipta- og menningar­mála­ráðherra.

5.  Þeir voru forsetar Banda­ríkjanna.

6.  Agatha Christie.

7.  Marokkó, Spánn og Bretland (Gíbraltar).

8.  Alfa.

9.  Bach.

10.  Frankenstein.

***

Svör við auka­spurningum:

Hundurinn er af sortinni Chow Chow.

Kortið sýnir aftur á móti Suðurskauts­landið, þegar búið er að bræða ofan af því ísinn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár