593. spurningaþraut: Hvað hét frænka Elísabetar og Sakaría?

593. spurningaþraut: Hvað hét frænka Elísabetar og Sakaría?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hún er ein­fald­lega svona: Hver er þessi kona?!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er Jóhann­es­ar­borg?

2.  Hvað köll­uðu Róm­verjar það land sem við nefnum nú Frakk­land?

3.  Árið 1902 var reistur spít­ali í Reykja­vík á stað sem nú telst vera Lind­ar­gata. Spít­al­inn var kost­aður af erlendu ríki og var ætl­aður sér­stak­lega til að sinna sjó­mönnum þess ríkis sem sóttu á Íslands­mið, en Íslend­ingar nutu líka góðs af. Hvaða erlenda ríki var þetta?

4.  Hver skrif­aði bók­ina Glæstar vonir, Great Expectations?

5.  Hvaða enski kóngur átti sex eig­in­konur?

6.  Hver var aðal­söng­kona hljóm­sveit­ar­innar Syk­ur­mol­arnir?

7.  Kona ein er hér um bil sú fræg­asta í sög­unni, en harla fátt er vitað um upp­runa hennar. Samkvæmt einni heim­ild voru hjón að nafni Elísabet og Sakaría skyld henni, en alls ekk­ert er vitað um for­eldra hennar sjálfrar. Hvað hét konan?

8.  Til að kom­ast frá úthafi inn í botn hins svo­nefnda Azovshafs, þá þurf­iði að sigla fyrst gegnum fjögur önnur inn­höf. Nefnið þau öll!  

9.  Fræg skáld­saga — og ekki síður fræg kvik­mynd eftir sög­unni — heitir á dönsku Borte med blæsten. Sagan er reyndar alls ekki dönsk, en hvað er hún nefnd á íslensku?

10.  Frægur svika­hrappur var eitt sinn í þjón­ustu ungs manns, og tókst að blekkja þjóð­höfð­ingja í landi einu til að trúa því að ungi mað­ur­inn hús­bóndi hans væri auð­ugur mark­greifi. Þetta tókst svika­hrappnum með alls­konar þykjustu­leikjum (en einnig með beinum ógn­unum í garð fólks) og end­aði meira að segja með því að drepa rumm­ung einn, sem ekk­ert hafði til saka unnið, og ræna húsi hans. En vegna þess að svika­hrappnum lán­að­ist ætl­un­ar­verk sitt, þá var ungi mað­ur­inn þaðan í frá einn af helstu mönnum lands­ins, og svika­hrapp­ur­inn ann­ál­aður fyrir glæsi­leg brögð sín og brellur. Hver var svika­hrapp­ur­inn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver á þennan hund?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Suður-Afríku.

2.  Gallíu.

3.  Frakk­land.

4.  Dickens.

5.  Hinrik 8.

6.  Björk.

7.  María mey.

8.  Mið­jarð­ar­haf, Eyjahaf, Marm­ara­haf, Svarta­haf.

9.  Á hverf­anda hveli.

10.  Stíg­vélaði kött­ur­inn.

***  

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er leik­konan Cate Blanchett.

Á neðri mynd­inni er Winston Churchill með hund­inn sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár