592. spurningaþraut: Stjórnmálamenn, Bragi Valdimar og öskrandi ljón!

592. spurningaþraut: Stjórnmálamenn, Bragi Valdimar og öskrandi ljón!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan sem þarna stillti sér upp með portú­galska fót­bolta­kapp­anum Cristiano Ronaldo fyrir fimm árum eða svo?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða banda­ríska kvik­mynda­fyr­ir­tæki hafði öskr­andi ljón sem sitt lógó eða ein­kenn­is­mynd?

2.  Fyrir hvaða flokk situr Ásmundur Frið­riks­son á þingi?

3.  En Diljá Mist Ein­ars­dóttir sem er nýliði á þing­inu?

4.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Ankara?

5.  Bragi Valdimar Skúlason er dóm­ari í fisléttum spurn­inga­þætti sem sýndur er í Rík­is­sjón­varp­inu á föstu­dags­kvöldum. Hvað heita þætt­irnir?

6.  Og hver er umsjón­ar­maður ásamt Braga Valdimar?

7.  Hver var for­sæt­is­ráð­herra Íslands alda­móta­árið 2000?

8.  Á Skaga­firði er eyja nokkur sem var í byggð til árs­ins 1950 þegar býli í eyj­unni brann til kaldra kola og íbúar gáfust upp á búsetu þar og fluttu í land. Hvað heitir eyjan?

9.  Hver er eini málm­ur­inn í lotu­kerf­inu (það er að segja frum­efni af málm­tagi) sem er í vökva­formi við stofu­hita?

10.  Brons heitir málmur einn, eða öllu blanda aðal­lega tveggja málma. Hvaða málmar eru það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað er þetta hús kallað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  MGM.

2.  Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

3.  Líka Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

4.  Tyrk­landi.

5.  Kappsmál.

6.  Björg Magn­ús­dóttir.

7.  Davíð Oddsson.

8.  Málmey.

9.  Kvika­silfur.

10.  Kopar og tin.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Sara Björk lands­liðs­kona í fót­bolta.

Á neðri mynd er ráð­herra­bú­stað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár