Börn þolendur í 61 prósent allra skráðra kynferðisbrota

Lögreglu á Íslandi hafa aldrei borist fleiri til­kynn­ingar um barn­a­níð en fyrstu 10 mán­uði þessa árs þegar til­kynnt var um 36 mál sem flokk­ast undir barn­a­níð. Þá fjölg­aði einnig til­kynn­ingum til lög­reglu um kyn­ferð­is­brot gegn börnum. Rann­sóknir hafa sýnt að til­kynn­ingar til lög­reglu um kyn­ferð­is­brot end­ur­spegli ekki raun­veru­legan fjölda brota, þau séu mun fleiri.

Börn þolendur í 61 prósent allra skráðra kynferðisbrota

Þetta kemur fram í tölum sem rík­is­lög­reglu­stjóri hefur tekið saman í til­efni þess að í dag er alþjóð­legur bar­áttu­dagur gegn kyn­bundnu ofbeldi. Þar segir að í fyrra hafi verið til­kynnt um færri nauðg­anir en árin á undan en að á sama tíma hafi til­kynn­ingum vegna kyn­ferð­is­brota gagn­vart börnum fjölgað. Hlutfall barna í hópi þolenda slíks ofbeldis hafi vaxið jafnt og þétt síð­ustu ár en börn yngri en átján ára voru 61 pró­sent brota­þola í þeim kyn­ferð­is­brota­málum sem til­kynnt voru til lög­reglu fyrstu 10 mán­uði þess árs. 

Brota­þolar kyn­ferð­is­brota greint eftir aldriGögn úr mála­skrá lög­reglu.

Karlar langoftast gerendur í kynferðisbrotamálum

Karlar eru enn í miklum meiri­hluta þeirra sem grun­aðir eru um kyn­ferð­is­brot og lang­flestir brota­þolar eru konur. Karlar eru grun­aðir um að hafa beitt kyn­ferð­is­of­beldi í 94 pró­sentum til­fella og konur 6 í sex pró­sentum til­kynntra mála. Það sem af er þessu ári hafa karlar verið brota­þolar í 16 pró­sent til­kynntra kyn­ferð­is­brota­mála og konur í 84 pró­sent skráðra mála. Ef ein­göngu er litið til þolenda nauð­gana eru karlar þolendur í 7 pró­sentum skráðra brot og konur í 93 pró­sentum brota. 

Kyn grun­aðra í kyn­ferð­is­brotumGögn úr mála­skrá lög­reglu.


Mikil fjölgun á tilkynningum um kynferðisbrot gegn börnum

Frá árinu 2016 hefur verið til­kynnt um 500-600 kyn­ferð­is­brot á hverju ári.
Í gögnum rík­is­lög­reglu­stjóra má finna upp­lýs­ingar um stöðu þess­ara mála í tengslum við heims­far­ald­ur­inn. Segir þar að ef litið sé til kyn­ferð­is­brota árs­ins 2020 og fjöldi þeirra bor­inn saman við fjölda mála af þeim toga árin þrjú á undan megi sjá að til­kynnt brot voru færri árið 2020. Nauðg­unum hafi fækkað úr að með­al­tali 235 brotum í 161 brot sem er um 31 pró­senta fækkun. Hins vegar hafi til­kynn­ingum vegna kyn­ferð­is­brota gegn börnum fjölgað. Þau voru 134 árið 2020 en að með­al­tali 98 á ári árin þrjú á undan sem er 36 pró­senta fjölgun. Það sem af er þessu ári hefur verið til­kynnt um 560 kyn­ferð­is­brot sem er 16 pró­senta fjölgun frá síð­ustu þremur árum þar á undan.

18 skráðar naugðanir á mánuði

Lögreglu hafa borist 184 til­kynn­ingar vegna nauð­gana en þær voru 143 yfir sama tíma­bil í fyrra. Að með­al­tali var til­kynnt um 18 nauðg­anir á mán­uði frá jan­úar til októ­ber á þessu ári. Rík­is­lög­reglu­stjóri segir að sam­kvæmt gögn­unum sé aug­ljóst að til­kynn­ingum um nauðg­anir fari almennt fjölg­andi. Þá eru til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot gegn börnum 25 pró­sentum fleiri í ár en síð­ustu þrjú ár þar á undan og aldrei hafa verið fleiri til­kynn­ingar vegna barn­a­níðs eins og fyrstu tíu mán­uði þessa árs. Rík­is­lög­reglu­stjóri segir að fjölgun eða fækkun skráðra kyn­ferð­is­brota geti farið eftir ýmsum þáttum. ,,Þannig getur sam­fé­lags­um­ræða á borð við #metoo orðið til að fjölga til­kynn­ingum um brot”  segir í frétta­til­kynn­ingu frá rík­is­lög­reglu­stjóra og að rann­sóknir hafi sýnt að mun fleiri kyn­ferð­is­brot eigi sér stað en til­kynnt er um til lög­reglu því sé eitt af lyk­il­mark­miðum lög­regl­unnar sam­kvæmt gild­andi lög­gæslu­á­ætlun 2019-2023 að hlut­fall þeirra sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­brotum og til­kynna það til lög­reglu auk­ist á tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár