Nota gervigreind fyrir sjálfvirkt myndavélaeftirlit

Eftirlit sem styðst við gervi­greind er veru­leiki á Íslandi í dag en slík tækni getur flokkað fólk eftir útlitsein­kennum. Per­sónu­vernd­ar­stofn­anir í Evrópu hafa kallað eftir því að slíkt verði bannað. Á Íslandi virð­ist gervi­greind­ar­eft­ir­lit aðal­lega notað fyrir aðgangs­stýr­ingu og hraða­eft­ir­lit en mögu­leik­arnir eru miklir.

Nota gervigreind fyrir sjálfvirkt myndavélaeftirlit
Sjálf­virkt Þegar gervi­greind er notuð í eft­ir­lit­stil­gangi er hægt að fylgj­ast með til­teknum ein­stak­lingum eða þeim sem hafa til­tekið útlit í raun­tíma. Mynd: Shutterstock

Eft­ir­lits­mynda­vélar sem tengdar eru við gervi­greind­ar­hug­búnað eru í notkun á Íslandi. Slíkar mynda­vélar geta haft sjálf­virkt eft­ir­lit með til­teknum svæðum og geta borið mynda­efni saman við önnur gögn, svo sem lista yfir ein­stak­linga eða öku­tæki. Þannig er hægt að hafa nákvæmt og sjálf­virkt eft­ir­lit með ferðum fólks og öku­tækja á til­teknum svæðum. Notkun á Íslandi virð­ist fyrst og fremst snú­ast um almenna vöktun og skrán­ingu bíl­núm­era við bíla­stæði.

Mynda­vélar sem seldar eru á Íslandi koma frá kín­verska fyr­ir­tæk­inu Dahua, sem hefur sætt gagn­rýni fyrir að sjá kín­verskum stjórn­völdum fyrir eft­ir­lits­bún­aði sem fylgist sér­stak­lega með Úígúrum. 

Geta greint lit og klæðnað

Auður Lilja Dav­íðs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Örygg­is­mið­stöð­inni, sem er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem selur gervi­greind­ar­eft­ir­lits­mynda­vélar, segir að með­al­hraða­mynda­vélar Vega­gerð­ar­innar sé dæmi um gervi­greind­ar­eft­ir­lit. „Mynda­vél­arnar reikna með­al­hraða öku­manns á til­teknum kafla með því að mynda bif­reið­ina og mynda hann aftur að ákveðnum veg­ar­kafla loknum og reiknar þannig út hver með­al­hraði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár