Lykillinn að langlífi er að koma í ljós

Það sem vís­inda­rann­sóknir sýna að skipti mestu fyrir lang­lífi gæti komið á óvart. Margt er á okkar for­ræði, en sam­fé­lagið í heild getur líka skipt máli. Ólafur Helgi Sam­ú­els­son öldr­un­ar­læknir segir að hvað áhrifa­rík­asta aðgerð sam­fé­lags­ins í heild til að auka heil­brigði á eldri árum, og þar með lang­lífi, sé að draga úr fátækt.

Lykillinn að langlífi er að koma í ljós

Sumir sér­fræð­ingar telja 99 pró­sent líkur á að sett verði nýtt met í háum aldri áður en 21. öldin er liðin. Hingað til hefur eng­inn lifað lengur en Jeanne Louise Clament sem varð 122 ára (1875–1997). En hvaða mögu­leika á fólk á að verða mjög lang­líft?

Genin skipta þar ekki öllu máli. Allar mann­eskjur hafa sömu gen að 99,9 pró­sent leyti. Það fólk sem nær mjög háum aldri er að örlitlu leyti með öðru­vísi gen (erfða­breyti­leika) sem stjórna lang­lífi þeirra en þá eru það hin genin, sem þau deila með okkur hinum, sem tak­marka ævi­lengd­ina og því verða þau sjaldn­ast eldri en 110 ára. Það virð­ist því sem öldrun séu tak­mörk sett. 

Töl­fræð­ingar hafa tekið eftir að dán­ar­tíðni þeirra sem ná mjög háum aldri nær ákveðnum stöð­ug­leika; enda þótt lík­urnar á að deyja auk­ist með hverju ári sem fólk lifir, hætta lík­urnar að aukast eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Haraldur Magnússon skrifaði
    Lágkolvetna mataræði og Ketó mataræði eru ekki sömu mataræðin. Það er hægt að vera á lágkolvetna mataræði án þess að ná ketósu, til þess þarf verulega lækkun á kolvetnum (ca. undir 20-50 grömm, fer eftir manneskju). Lágkolvetna mataræði er oft skilgreint sem mataræði með kolvetni undir 100-120 grömm á dag (stundum % af kkal inntöku).
    Þannig þetta er alls ekki sama mataræðið.
    0
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Þetta legst nú ekki vel í Féhirðinn okkan hann Bjarna.
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Góð grein takk fyrir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár