579. spurningaþraut: Þessi mynd er ekki af tónskáldi, samt snýst spurningin um tónskáld

579. spurningaþraut: Þessi mynd er ekki af tónskáldi, samt snýst spurningin um tónskáld

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan á að leiða huga ykkar að frægu tón­verki. Hver samdi það tón­verk?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða borg er fót­bolta­völlur sem heitir eftir karli að nafni Santiago Bernabéu?

2.  Hvaða líf­færi heitir „cor“ á lat­ínu?

3.  Hvaða vin­sæla hljóm­sveit sendi í fyrnd­inni frá sér tvö­falda plötu sem nefnd er Hvíta albú­mið?

4.  Í einu vin­sælasta lagi Hvíta albúms­ins fjallar söngv­ar­inn á fjör­legan hátt um það þegar hann snýr aftur fljúg­andi til ... hvaða ríkis?

5.  Hversu mörg eru stig felli­bylja?

6.  Aug­lýs­ing Íslands­stofu þar sem snúið var á góð­lát­legan hátt úr aug­lýs­ingu frá Facebook vakti mikla athygli. Í aug­lýs­ing­unni vekur leik­ari athygli á „Iceland-verse“ þar sem grín­ast er með fyr­ir­bæri sem for­stjóri Facebook hafði kynnt með mik­illi við­höfn og sagði fram­tíð mann­kyns­ins liggja í þessu fyr­ir­bæri. Hvað kall­aði for­stjór­inn það?

7.  En hvaða íslenski leik­ari lék í aug­lýs­ing­unni?

8.  Í lok 12. aldar var oft grunnt á því góða milli Eng­lend­inga og Frakka en árið 1189 héldu kon­ungar beggja þó í sam­eig­in­legan leið­angur til að reyna að frelsa eina fræga borg úr klóm óvina sinna. Hvaða borg var það?

9.  Nefnið að minnsta kosti annan kon­ung­anna tveggja með nafni.

10.  En hvað hét for­ingi and­stæð­ing­anna sem héldu þess­ari borg? Sá þótti göf­ugur og prúður í meira lagi, svo meira að segja kóng­arnir tveir, svarnir and­stæð­ingar hans, báru fyrir honum fyllstu virð­ingu.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Af hverjum eða hverri er þessi mynd Halldórs Pét­urs­sonar — aðal­lega?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Madrid.

2.  Hjartað.

3.  Bítl­arnir.

4.  Sov­ét­ríkj­anna, öðru nafni U.S.S.R. Smellið á "Watch on YouTube".

5.  Fimm.

6.  Meta­verse.

7.  Jörundur Ragn­ars­son.

8.  Jer­úsalem.

9.  Ríkarður ljóns­hjarta (kon­ungur Englands) og Filippus ágæti (kon­ungur Frakk­lands). Annað nafnið er sem sé nóg og þarf ekki við­ur­nefnin einu sinni!

10.  Saladín.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Efri myndin á að minna á frægan lokakafla for­leiks­ins 1812.

Þar koma fall­byssur Napól­e­ons-tím­ans koma mjög við sögu.

Verkið samdi Tsjækov­skí.

Neðri myndin er aftur á móti af Grýlu.

Hún birt­ist á sínum tíma í Vísnabók einni víð­frægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár