Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal

Starfs­menn Hótel Borgarnes höfðu óheftan aðgang að óinnsigluðum atkvæðum í auðum sal hótelsins meðan yfir­kjörstjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu talningu lauk. Lögreglan getur ekki staðfest hvort að starfs­mennirnir hafi farið að svæðinu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­mennirnir hverfa úr sjónar­sviði eftirlits­myndavéla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Boðið að ljúka máli með sektargerð
Boðið að ljúka máli með sekt­ar­gerð Inga Tryggva­syni, for­manni yfir­kjör­stjórnar Norð­vest­ur­kjör­dæmis hefur verið boðið að ljúka máli á rann­sókn lög­reglu á með­ferð atkvæða í kjör­dæmi með sekt­ar­gerð upp á 250 þús­und krónur. Mynd: Dómsmálaráðuneytið

Engin leið var fyrir lögregluna að komast að niður­stöðu um hvort einher hafi átt við kjörgögn í Norðvestur­kjördæmi eftir að talninga­fólk lauk vinnu sinni og yfirgaf talningar­stað að morgni 26. september. Í rannsókn lögreglu var hins vegar staðfest að ferðir inn í salinn voru á annan tug en ekki er getið til um hversu margir starfs­menn fóru þar inn á meðan kjörgögn lágu óinnsigluð. Þrír þeirra tóku myndir af eftirlits­lausum seðlunum.

Eftirlits­myndavélar á hótelinu eru stað­settar fyrir utan sjálfan talningar­salinn. Vegna þess hvernig sjónar­horn þeirra er hverfur starfs­fólkið annað slagið úr sjónar­sviði eftirlits­mynda­vélanna. Tíminn sem fólkið er inni í salnum og ekki í mynd er frá því að vera í nokkrar sekúndur upp í tvær mínútur og 25 sekúndur. Lögregla tók skýrslu af starfs­fólki hótelsins sem fullyrða að það hafi ekki átt við gögnin. Þetta herma heimildir Stundarinnar.

Ingi Tryggvason, formaður yfir­kjör­stjórnar, hefur áður sagt í viðtali …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2021

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár