Viðbúnaður í miðborginni vegna rafmagnsleysis og brunalyktar

Stór hluti miðborg­ar­innar er rafmagns­laus.

Úr miðbænum rétt í þessu
Úr mið­bænum rétt í þessu Veg­far­endur og starfs­fólk fyr­ir­tækja hóp­að­ist saman til að fylgj­ast með atburða­rásinni.

Slökkvibílar, lögreglu­bíll og sjúkra­bíll hafa leitað að upptökum rafmagns­leysis og hugsanlegs bruna í miðborginni nú fyrir kvöldmatar­leytið. Talið er að brunalykt sem liggur yfir Pósthús­stræti og Austur­völl gæti tengst rafmagns­leysinu. Rafmagns­laust varð í stórum hluta miðborgarinnar og voru veitinga­staðir, ásamt öðrum vinnu­stöðum, óstarfhæfir.

Samkvæmt upplýsingum frá Veitum eru upptökin fundin og má rekja rafmagsnsleysið til háspennu­bilunar í miðbæ Reykja­víkur. Unnið er að viðgerð og er vonast til þess að rafmagn verði komið aftur á innan klukku­stundar, eða um klukkan sjö í kvöld. 

Eins er rafmagns­laust í Vestur­bænum, þótt rafmagns­leysið nái ekki til allra heldur aðeins sumra húsa. Það er til að mynda ekki rafmagns­laust í Þjóð­leikhúsinu þótt veitinga­staðir séu margir í vanda. 

Í leið­beiningum frá Veitum er fólki bent á að slökkva á rafmagns­tækjum sem slökkva ekki á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju, en það á sérstak­lega við um sjónvörp, eldavélar, mínútu­grill og fleiri hitunar­tæki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár