Sendir út her­hvöt Gunnar Smári Egilsson hefur sent út ákall til fólks um að styðja við upp­bygg­ingu „rót­tækrar fjöl­miðl­unar“ með fjár­magni og vinnu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjölmiðill Sósíalista „aldrei annað en áróðurstæki“

Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári hefur sent út ákall til fólks um að styðja við upp­bygg­ingu „rót­tækrar fjöl­miðl­unar“ með fjár­magni og vinnu. Slíkur mið­ill gæti aldrei flokk­ast til þess sem kall­ast fjöl­miðlar í hefð­bundnum skiln­ingi þess orðs að mati for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Miðill fjár­magn­aður og rek­inn af stjórn­mála­flokki, líkt og Sós­í­alista­flokkur Íslands boðar, getur aldrei orðið fjöl­mið­ill í hefð­bundnum skiln­ingi þess orðs. Þetta segir Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands. „Þetta gæti aldrei orðið annað en áróð­urstæki fyrir þær skoð­anir sem þarna ríkja.“

Í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga boð­aði Sós­í­alista­flokk­ur­inn að styrkir sem ríkið veitir stjórn­mála­flokkum yrðu nýttir til að efla hags­muna­bar­áttu og byggja upp fjöl­miðil í sam­starfi við Alþýðu­fé­lagið, Sam­stöð­ina. 

Þessar fyr­ir­ætl­anir voru árétt­aðar strax að kosn­ingum loknum með grein sem birt­ist á Vísi þann 28. sept­em­ber, þremur dögum eftir kosn­ingar. Þar aug­lýsti Gunnar Smári Egilsson eftir fólki til starfa á Sam­stöð­inni, en hann er einn helsti hug­mynda­fræð­ingur Sós­í­alista­flokks­ins, for­maður fram­kvæmda­stjórnar og odd­viti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, kynntur sem „atvinnu­laus blaða­maður“. Nú stendur hins vegar til að nýta 120 millj­ónir sem renna frá rík­inu til Sós­í­alista­flokks­ins í gegnum styrki til stjórn­mála­flokka til að byggja upp „rót­tækan fjöl­miðil“, með það að mark­miði að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár