Fyrirtæki í eigu Icelandair keypti þrjár Boeing-þotur til Tortóla með láni frá íslenskum banka

Nafn fyr­ir­tækis í eigu flug­fé­lags­ins Icelandair kemur fyrir í Pand­óru­skjöl­unum svoköll­uðu. Fyr­ir­tæki í eigu Icelandair hafa nú komið við sögu í þremur stórum lekum úr skatta­skjólum síð­ast­liðin ár.

Fyrirtæki í eigu Icelandair keypti þrjár Boeing-þotur til Tortóla með láni frá íslenskum banka

Fyr­ir­tæki í skatta­skjól­inu Tortóla, sem var í eigu dótt­ur­fé­lags flug­fé­lags­ins Icelandair, keypti þrjár Boeing-þotur með lánum frá Íslands­banka, síðar Glitni. Tortóla­fé­lagið heitir Barkham Associates S.A. Félagið á Tortóla var í eigu dótt­ur­fé­lags Icelandair, IG Invest ehf., sem aftur var hluti af rekstri flug­véla­leig­unnar Icelease ehf. Aldrei var minnst á til­vist Tortóla­fé­lags­ins í árs­reikn­ingum Icelandair eða tengdra félaga, svo vitað sé. 

Lánið til flug­véla­kaupanna var veitt árið 2004 og tók Glitnir veð í þot­unum til að tryggja það. For­stjóri Icelandair á þessum tíma var Sigurður Helgason en hann stýrði félag­inu frá 1985 til 2005. Þáver­andi fjár­mála­stjóri Icelandair, Halldór Vil­hjálms­son, sett­ist í stjórn Tortóla­fé­lags­ins og var í því hlut­verki þar til árið 2009 þegar Kári Kárason, núver­andi fram­kvæmda­stjóri og einn af eig­endum Icelease ehf., tók við því hlut­verki hans.

Sýnir eign IG Invest í Tortóla­fé­lag­inuGagn úr Pand­óru­skjöl­unum …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Aflands­hýs­ing í aflands­fé­lagi hýsir klám og nýnas­ista­á­róður á Íslandi

Íslend­ingur búsettur í Taílandi er pott­ur­inn og pannan í rekstri umdeilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tækis sem gerir út á tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði íslenskra laga. Klám, nýnas­ista­á­róður og nafn­laust níð er hýst á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ segir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem afhjúpaðir eru í Pand­óru­skjöl­unum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár