527. spurningaþraut: U Thant, hér er spurt um hann í fyrsta sinn

Fyrri auka­spurning:

Hvaða fáni er hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Farþega­þotur hvaða fyrir­tækis bera tegundar­heiti eins og 707, 717, 727, 737, 747 og svo framvegis?

2.  Hver var leik­hússtjóri Leik­félags Reykja­víkur eða Iðnós á árunum 1972-1980?

3.  Hver andaðist fyrir réttum 200 árum á eyjunni St. Helenu?

4.  Hjá hvaða fótbolta­liði spilar Jóhann Berg Guðmundsson?

5.  Við hvaða fjörð stendur Akureyri?

6.  Hvað nefnist vitinn yst á Seltjarnarnesinu?

7.  Í hvaða landi bjó og starfaði spekingurinn Konfúsíus?

8.  Hvað kallast ílátið þar sem boga­skyttur geyma örvar sínar?

9.  Hvaða starfi gegndi U Thant á árunum 1961-1971? 

10.  En frá hvaða landi var hann?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Boeing.

2.  Vigdís Finnboga­dóttir.

3.  Napóleon.

4.  Burnley.

5.  Eyja­fjörður.

6.  Gróttu­viti.

7.  Kína.

8.  Örvamælir.

9.  Aðal­ritari (framkvæmda­stjóri) Sameinuðu þjóðanna.

10.  Búrma eða Míanmar.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er fáni Englands. Sem sagt auðvitað ekki Bretlands.

Á neðri myndinni er David Bowie.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár