Fyrri aukaspurning:
Hvað heitir persónan hér að ofan?
***
Aðalspurningar:
1. Árið 2016 fékk bók eftir Arnar Má Arngrímsson unglingabókaverðlaun Norðurlandaráðs. Bók hans fjallaði um unglinginn Sölva. En hvað hét verðlaunabókin: Sölvasaga ... hvað?
2. Forsetinn í ríki einu var nýlega myrtur. Hvaða ríki var það?
3. Hræ af búrhvölum finnast stundum í fjöru illa leikin eftir helstu óvini búrhvalsins í hafinu. Hvaða óvinir eru það? Eru það: A) Aðrir búrhvalir, — B) Háhyrningar, — C) Hákarlar, — D) Kafarar, — E) Kafbátar, — F) Ljónsmakka-marglyttur, — G) Netadræsur, — H) Queeqeg, Tashtego, Daggoo og Fedallah, — I) Smokkfiskar, — J) Risa-stingskötur.
4. Hvar eru Ljósufjöll?
5. En í hvaða á er Ljósafoss?
6. Í hvaða ríki búa Bretónar flestir?
7. Hver leikstýrði kvikmyndinni Schindler's List?
8. Hún heitir Stanhope og er rannsóknarlögreglumaður á norðanverðu Englandi, gengur yfirleitt með ljótan hattkúf á höfði og keyrir Landrover. Hvað heitir hún að fornafni?
9. Önnur ensk lögreglukona heitir Cassie Stewart og helgaði sig rannsóknum á gömlum glæpamálum í sjónvarpsseríunni Unforgotten. Hún andaðist hins vegar eftir ákeyrslu í síðustu seríunni. Hvað heitir leikkonan sem lék Cassie Stweart?
10. Í hvaða landi er höfuðborgin Belgrad?
***
Seinni aukaspurning:
Hvað heitir ungi pilturinn hér að neðan?

***
Svör við aðalspurningum:
1. ... unglings. Bókin heitir sem sé: Sölvasaga unglings.
2. Haíti.
3. Smokkfiskar.
4. Á Snæfellsnesi. Á mótum Snæfellsness og Borgarfjarðar er eiginlega rétt líka ef einhver vill.
5. Í Soginu.
6. Frakklandi.
7. Spielberg.
8. Vera.

9. Nicola Walker.
10. Serbíu.
***

Svör við aukaspurningum:
Persónan á efri myndinni heitir Ali G. Leikarinn heitir eitthvað allt annað.
Ungi pilturinn á neðri myndinni heitir Barron Trump.

Þetta er nokkurra ára gömul mynd og hann hefur stækkað töluvert síðan hún var tekin.
Hér má hins vegar sjá hann með foreldrum sínum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir