Varar við nátt­úru­leysi Kristín segir mann­eskj­una hafa þörf fyrir nánd við nátt­úr­una.

Streitan getur valdið slysum

Kristín Sig­urð­ar­dóttir slysa- og bráða­læknir, sem vann um ára­bil á vegum íslenskra útgerða á Las Palmas, þurfti síðar að hætta störfum hjá Land­spít­al­anum vegna veik­inda sem stöf­uðu af raka­skemmdum í hús­næði spít­al­ans. Kristín horfir á lík­amann sem heild og vinnur að því að efla seiglu og bregð­ast við streitu.

Kristín Sig­urð­ar­dóttir fædd­ist árið sem California Dreamin með Mamas & the Papas var á toppnum og svo má nefna The Boots are Made for Walkin með Nancy Sinatra og Strangers in the Night með Frank Sinatra. Faðir hennar er Sigurður Björns­son krabba­meins­læknir og móðir hennar er Guðný Stefánía Krist­jáns­dóttir frumu­tæknir. Kristín ólst upp í Banda­ríkj­unum. „Við bjuggum fyrst í Connecticut og síðan í Buffalo, New York. Þar var aðal­lega töluð enska á heim­il­inu.“

Fjöl­skyldan flutti til Íslands þegar Kristín byrj­aði í gagn­fræða­skóla og segir hún að það hafi verið svo­lítil áskorun að byrja í skól­anum og tala „barna­mál“ á íslensku. „Þegar ég verð þreytt eða þarf að ein­beita mér fer ég svo­lítið að hugsa á ensku.“

Fann ræturnar á Íslandi

Hún var alltaf ákveðin í að flytja aftur til Banda­ríkj­anna en raunin varð önnur. Hún fann ræt­urnar á Íslandi og vildi ekki aftur út. Þegar stúd­ents­húfan var komin á koll­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár