Tekjuhæsta konan ein fárra á listanum

Konur eru í miklum minni­hluta á hátekju­lista Stund­ar­innar yfir þá Íslend­inga sem þén­uðu mest á síð­asta ári. Aðeins ein kona kemst í 20 efstu sæti list­ans. Vís­bend­ingar eru um að staða kvenna á list­anum sé enn verri en virð­ist þar sem fjár­magnstekjur karla virð­ast oft skráðar á eig­in­konur þeirra.

Tekjuhæsta konan ein fárra á listanum

Konur eru í miklum minni­hluta á lista yfir eitt pró­sent tekju­hæstu Íslend­ing­anna fyrir árið 2020. Listinn nær yfir 3125 ein­stak­linga sem, sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá Skatts­ins, höfðu hæstar tekjur að teknu til­liti til bæði launa­tekna og fjár­magnstekna.

Aðeins 524 konur kom­ast á list­ann eða sem nemur 17 pró­sentum. Með öðrum orðum eru aðeins 0,17 pró­sent kvenna á meðal tekju­hæsta 1 pró­sents­ins. 

Á toppnum vegna sameiginlegra tekna

Sú er situr á toppi list­ans er kona að nafni Inga Dóra Sig­urð­ar­dóttir en hún og eig­in­maður hennar, Börkur Arn­við­ar­son, fengu mynd­ar­legan arð út úr dönsku tækni­fyr­ir­tæki sem þau eiga hlut í ásamt sonum sínum tveimur, Unn­steini og Ásgeiri.

Fyr­ir­tækið, sem Börkur tók þátt í að stofna, hefur stór­grætt á COVID-19 far­aldr­inum en það fram­leiðir búnað sem not­aður er til nákvæmra mæl­inga í heil­brigð­is­geir­anum. Meðal ann­ars við þróun á bólu­efnum. Jafnvel þó að fjár­magnstekj­unum sem þau hjónin höfðu árið 2020 sé skipt í tvennt er Inga Dóra enn meðal allra tekju­hæstu Íslend­ing­unum. 

Á toppnumInga Dóra var tekju­hæst Íslend­inga á síð­asta ári vegna tekna sem hún og eig­in­maður hennar, Börkur Arn­við­ar­son, fengu út úr sam­eig­in­legu eign­ar­halds­fé­lagi þeirra í Danmörku.

Þessar miklu fjár­magnstekjur, sem er ástæðan fyrir því að tekju­drottn­ingin fær krúnu sína, eru sam­eign þeirra hjóna. Þau eru bæði skráðir eig­endur að dönsku eign­ar­halds­fé­lagi sem greiddi þeim þessa pen­inga í arð. Fjár­magnstekj­urnar eru hins­vegar aðeins skráðar á hana vegna við­miða skatts­ins um að gjald­færa fjár­magnstekju­skatt á þann ein­stak­ling í hjóna­bandi sem hefur hærri tekjur. Sömu sögu er að segja um aðra sem hafa fjár­magnstekjur; í ein­hverjum til­vikum eru það ekki sér­tekjur þeirra heldur hlut­deild í fjár­magnstekjum hjóna. Stundin miðar þó við upp­lýs­ing­arnar eins og Skatt­ur­inn skráir þær en hafa verður í huga þessa aug­ljósu anna­marka sem eru á gagna­safn­inu. 

Tekjuháu konurnar tekjuhærri

Konurnar sem kom­ast á list­ann eru þó að jafn­aði með hærri heild­ar­árs­tekjur en karl­arnir. Konurnar 524 eru að með­al­tali með 47,7 millj­ónir í árs­tekjur en karl­arnir 46 millj­ónir. Ef heild­ar­tekjur eru skoð­aðar, óháð fjölda ein­stak­linga af hvoru kyni sést hversu mikið meira karl­arnir hafa fengið í sinn hlut. Karl­arnir þén­uðu 120 millj­arða króna á síð­asta ári á meðan tekju­hæstu kon­urnar þén­uðu 25 millj­arða. Munurinn á körlum og konum er því 95 millj­arðar króna. 

En hvaða konur eru þær tekju­hæstu? Engin kona að Ingu Dóru frá­tal­inni kemst á topp tíu list­ann - ekki einu sinni topp 20. 

Efstu konurnar á hátekjulistanum

2Birna Lofts­dóttir, hlut­hafi í Hval hf, er næst efsta kona á lista og situr í 21. sæti. Bróðir hennar, Kristján Loftsson, sem stýrir Hval hf. er líka á list­anum, bara fimmtán sætum ofar í því sjö­unda. Fjöl­skylda þeirra Krist­jáns og Birnu auðg­að­ist fyrst á rekstri Hvals sem, eins og nafnið gefur til kynna, stund­aði hval­veiðar og vinnslu. Þau áttu líka um ára­bil frysti­togar­ann Venus sem síðar rann í útgerð­ina Granda, sem seinna varð HB Grandi og loks Brim eftir síð­ustu vend­ingar. Árið 2018 seldu þau Birna og Kristján og félög í þeirra eigu í Brimi fyrir 21,7 millj­arða króna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

0,1 prósentið

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár