Biðlar til íslenskra stjórnvalda: „Ég hef misst svo marga“

Sayed Khanog­hli er tví­tugur strákur á Íslandi sem kom sem flótta­maður frá Afganistan, þar sem fjöl­skylda hans barð­ist gegn hug­mynda­fræði tali­bana og varð fyrir ítrek­uðum árásum vegna þess. Nú er hann fastur í martröð þar sem hann ótt­ast um afdrif sinna nán­ustu ætt­menna og biðlar til íslenskra stjórn­valda að sækja afganskar fjöl­skyldur.

Heims­pressan vakir yfir þróun mála í Afganistan, og áhrifum þeirra á stjórn­mála­á­stand í mið­lægri Asíu, en hér á landi er ungur maður þjáður af áhyggjum vegna sér­stakrar fjöl­skyldu, nefni­lega hans eigin.

Sayed Khanog­hli er tví­tugur flótta­maður sem kom til lands­ins og fékk hæli fyrir tveimur og hálfu ári. Samhliða námi í kvik­mynda­gerð við Borg­ar­holts­skóla gegnir hann for­mennsku Ung­menna­hreyf­ingar Amnesty International á Íslandi, og hefur Sayed einnig verið virkur í marg­vís­legri mann­rétt­inda­bar­áttu, meðal ann­ars sem tals­maður kven­rétt­inda. Hann segir atburði sein­ustu daga hafa komið sér og öðrum gjör­sam­lega í opna skjöldu, með til­heyr­andi áfalli: „Þetta er eins og að vera fastur í martröð. Ég er búinn að týna til­finn­ing­unum mínum. Ég finn fyrir hungri en mig langar ekki í mat. Ég veit að ég þarf svefn en ég get ekki fest blund á kvöldin. Þegar ég loka aug­unum sé ég sjálfan mig í aðstæðum fjöl­skyldu minnar. Jafnvel þótt ég sé öruggur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár