497. spurningaþraut: Hvar, já hvar eru Ceres, Vesta, Pallas og Hygiea?

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða kvik­mynd birt­ist þessi ill­skeytta kona fyrst?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Með hvaða félags­liði í fót­bolta spilar Belginn Kevin De Bruyne?

2.  Hver var æðsta og raunar eina ósk Akabs skip­stjóra?

3.  Árið 1934 varð harður jarð­skjálfti á Íslandi og olli tölu­verðum skemmdum sér í lagi í einum þétt­býl­is­stað. Hvaða staður var það?

4.  Þóra Hilm­ars­dóttir, Börkur Sig­þórs­son og Baltasar Kormákur gerðu svo­lítið öll þrjú á síð­asta ári sem engir aðrir gerðu. Hvað var það?

5.  Rosario heitir millj­óna­borg í landi einu. Hvaða landi?

6.  Hversu margar mín­útur eru í venju­legum hand­bolta­leik? — fyrir utan leik­hlé auð­vitað.

7.  Vúdú er nafn á trú­ar­brögðum sem tíðkast í mörgum löndum og eiga sér að ýmsu leyti flók­inn upp­runa — en eru þó óneit­an­lega tengd alveg sér­stak­lega tveimur löndum á eyju einni. Nefna að minnsta kosti annað landið.

8.  Hvar eru Ceres, Vesta, Pallas og Hygiea?

9.  Hvaða stjórn­mála­flokkur fékk hreinan meiri­hluta þing­manna í Alþing­is­kosn­ingum 1931, þrátt fyrir aðeins 35 pró­senta fylgi?

10.  Hvað hét dóttir Hösk­uldar Dala-Kolls­sonar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Manchester City.

2.  Drepa Moby Dick.

3.  Dalvík.

4.  Þau leik­stýrðu þáttum úr ser­í­unni Kötlu.

5.  Argent­ínu.

6.  Sextíu mín­útur.

7.  Haíti og/eða Dómínikanska lýð­veldið.

8.  Í loft­steina­belt­inu milli Mars og Júpíters.

9.  Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn.

10.  Hall­gerður.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Hin efri mynd er skjá­skot úr kvik­mynd­inni Matrix.

Hin neðri mynd sýnir þjóð­fána Suður-Kóreu.

***

Og hér að neðan eru hlekkir á eldri þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár