496. spurningaþraut: Hvaða ríki byrja á Z á öðrum málum en íslensku?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hjá hverjum vinnur per­sónan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Íslend­ingar nota ekki bók­staf­inn Z lengur. Á alþjóð­legum málum byrja nöfn tveggja ríkja heims­ins á Z. Hvað heita þau? Og já, nefna þarf bæði.

2.  Hvaða alþing­is­maður hélt á sínum tíma margra klukku­tíma ræðu á Alþingi til að tefja fyrir því að Z-an yrði lögð niður í íslensku máli?

3.  Hversu margir voru kosnir á þing fyrir VG í kosn­ing­unum 2017?

4.  Hve gömul er Britney Spears? Hér má skeika einu ári.

5.  Hvaða ungi tón­list­ar­maður kennir sig við fæðu­teg­und?

6.  Hvað hét íslenski fjall­göngu­mað­ur­inn sem fórst á fjall­inu K2 í upp­hafi árs­ins?

7.  Hvað heitir höf­uð­borg Ástralíu?

8.  Lala, Pó, Tinki Vinkí og ... hver?

9.  Hver skrif­aði leik­ritin Máfinn, Kirsu­berja­garð­inn og Þrjár systur?

10.  Hver er barna­mála­ráð­herra á Íslandi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða miklu stór­borg má sjá hér úr lofti? Norður snýr upp eins og van­inn er.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Zimbabwe og Zambia.

2.  Sverrir Her­manns­son.

3.  Níu. Þeir eru nú sjö en það er önnur saga.

4.  Hún er 39 ára svo rétt er 38-40.

5.  Herra Hnetu­smjör.

6.  John Snorri.

7.  Canberra.

8.  Dipsí. Þetta eru Stub­b­arnir sem kunn­ugt er.

9.  Chekhov.

10.  Ásmundur Einar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Dönu Scully, starfs­mann FBI í sjón­varps­þátt­unum X-Files.

Neðra skjá­skotið er loft­mynd af París.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár