495. spurningaþraut: Hér má sjá Andrés Önd við óvenjulega iðju

495. spurningaþraut: Hér má sjá Andrés Önd við óvenjulega iðju

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Snorri Olsen heitir karl nokkur sem gegnir háu emb­ætti hjá rík­inu. Embættið er afar nauð­syn­legt, en ekki ævin­lega vin­sælt því Snorri er ... hvað?

2.  Í hvaða stóra vatni á Aust­ur­landi hefur gjarnan verið sagt búa skrímsli?

3.  En hvað heitir langstærsta stöðu­vatnið í Svíþjóð?

4.  Hvaða íslensk hljóm­sveit hefur gefið út sér­stakt lag um íslenska karl­menn?

5.  Þar er meðal ann­ars sungið: „Ef heitt er í kol­unum förum við oft­ast úr bolnum, / ef þannig ber undir ...“ þá hvað?

6.  Leik­stjóri einn banda­rískur, sem gert hefur tugi kvik­mynda og naut mik­illa vin­sælda að minnsta kosti til skamms tíma, hann hefur á síð­ustu árum verið ásak­aður fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni í garð að minnsta kosti einnar dóttur sem hann átti með þáver­andi konu sinni, sem er leik­kona. Hvað heitir leik­stjór­inn?

7.  En hvað heitir leik­konan sem hér um ræðir?

8.  Í útjaðri Vín­ar­skógar, um 15 kíló­metrum frá mið­borg Vín­ar­borgar, stendur kast­ali einn sem reistur var á 12. öld. Sá kast­ali er í eigu fjöl­skyldu sem hefur alla tíð síðan verið kennd við kast­al­ann. Meg­in­þorri fjöl­skyld­unnar býr þó ekki lengur í þessum kast­ala, heldur flutti burt, og nú heitir heilt sjálf­stætt ríki eftir þess­ari fjöl­skyldu og þar með eftir þessum kast­ala. Hvað heitir kastal­inn? 

9.  63 þing­menn sitja á Alþingi Íslend­inga. Hve margir þeirra voru kosnir af listum Sjálf­stæð­is­flokks­ins 2017?

10.  Hvað er elsta fót­boltaliðið sem nú spilar í ensku Úrvals­deild­inni? Til að hjálpa ykkur, þá vil ég taka fram að það er ekki eitt af þeim allra, allra fræg­ustu.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Skjá­skotið hér að neðan er hluti af aug­lýs­ingaplakati fyrir stutta teikni­mynd um Andrés Önd frá 1942. Myndin þykir nokkuð óvenju­leg í röð mynda um Andrés Önd. Plakatið sýndi Andrés kasta tómati framan í ... hvern?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rík­is­skatt­stjóri.

2.  Leginum.

3.  Vänern.

4.  Stuðmenn.

5.  „... gröfum við okkur í fönn.“  

6.  Woody Allen.

7.  Mia Farrow.

8.  Liechtenstein.

9.  Sextán.

10.  Aston Villa.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir leik- og söng­kona. Óþarfi er að þekkja föð­ur­nafnið.

Á neðri mynd­inni er Andrés að henda tómati framan í Adolf Hitler í mynd­inni The Fuehrer's Face.

***

Svo eru hér að neðan hlekkir á fyrri spurn­inga­þrautir, eigi er fyrir það að synja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár