Maður getur alveg fundið hamingjuna í grámanum

„Það er auð­veld­ara að vera glaður á sumrin; ég er alla­vega þannig að það getur haft áhrif á mig. Ég þarf stundum að berj­ast aðeins meira fyrir ham­ingj­unni ef það er myrkur og rok,“ segir Arndís Hrönn Egils­dóttir leik­kona, sem segir þó að maður geti alveg fundið ham­ingj­una í grám­anum.

Maður getur alveg fundið hamingjuna í grámanum
Arndís Hrönn Egils­dóttir Leik­konan vann áður við að hringja út könnun um ham­ingj­una. Mynd: Heida Helgadottir

„Ég er ekki með lyk­il­inn að lífs­ham­ingj­unni en ég veit alveg hvað það er að vera ham­ingju­samur; alla­vega stundum,“ segir Arndís Hrönn Egils­dóttir leik­kona. „Ég held að ham­ingjan sé ein­hvers konar sátt. Stundum er eins og ham­ingjan komi aftan að manni og í gegnum ein­hverjar rifur. Allt í einu upp­lifir maður stundum ham­ingju­til­finn­ingu eða ein­hverja tengsla­til­finn­ingu, hvort sem það er til dæmis við aðrar mann­eskjur, nátt­úr­una eða í gegnum tón­list.

Sterkasta ham­ingju­til­finn­ingin sem ég man eftir er þegar ég átti dóttur mína og var að keyra heim af fæð­ing­ar­deild­inni og mér fannst ég aldrei hafa séð him­in­inn eins fal­legan. Hann var allt öðru­vísi en venju­lega og hann var öðru­vísi á lit­inn. Ég hafði örugg­lega séð svona fal­legan himin áður en þarna fannst mér ég aldrei hafa séð neitt eins fal­legt. Mér fannst allt ein­hvern veg­inn hafa breytt um lit. Það er ham­ingju­til­finn­ing. Svo getur maður líka fengið ham­ingju­til­finn­ingu upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár