Þolendur kynferðisáreitis á Bessastöðum í leyfi eða hætt

Á Bessa­stöðum búa þrjár fjöl­skyldur; for­seta Íslands og tveggja starfs­manna emb­ætt­is­ins. Und­an­farið ár hefur sam­búðin verið erfið. Annar þess­ara starfs­manna og eig­in­kona hans íhuga að kæra hinn starfs­mann­inn til lög­regl­unnar fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar.

Þolendur kynferðisáreitis á Bessastöðum í leyfi eða hætt
Heimili Bessa­staðir er heim­ili for­seta og tveggja starfs­manna emb­ætt­is­ins. Sambúðin hefur verið styrð síðan einn íbú­inn áreitti nágranna sína í ferð starfs­manna til Parísar.

Tveir starfs­menn for­seta­emb­ætt­is­ins hafa und­an­farna mán­uði verið í veik­inda­leyfi sem þeir rekja til kyn­ferð­is­legrar áreitni af hálfu sam­starfs­manns þeirra. Þriðji ein­stak­lingur, sem er búsettur á Bessa­stöðum, hefur einnig orðið fyrir áreitni af hálfu sama manns. Eini mað­ur­inn sem teng­ist mál­inu og hefur verið að störfum nær óslitið á tíma­bil­inu er ger­and­inn. Sá hefur geng­ist við því að hafa áreitt sam­starfs­menn sína og nágranna en vék aðeins tíma­bundið frá störfum að skipan for­seta Íslands, sem þó hélt því rang­lega fram í yfir­lýs­ingu í októ­ber 2019 að málið hefði verið leyst í sátt við þolendur.

Annar starfs­mann­anna taldi best að hætta hjá emb­ætt­inu og hinn hefur velt því upp við fólk í kringum sig hvort honum muni nokkurn tím­ann verða vært í starfi hjá emb­ætt­inu, á meðan málið er óleyst. Sá býr ásamt fjöl­skyldu sinni á Bessa­stöðum, á móti ger­and­anum, en fjöl­skyldur þeirra eru tvær af þeim þremur sem búsettar eru á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár