Gekk 89 ára gamall að eldgosinu: „Stórkostlegt“

„Það var bara stór­kost­legt að sjá þetta þegar maður var kom­inn svona nálægt,“ segir Sveinn Sig­munds­son, sem hefur í ára­tugi farið í lengri og styttri göngu­ferðir. Áður fyrr gekk hann á fjöll og jökla og seg­ist hann nú ein­göngu fara dag­lega í klukku­stundar göngut­úra í Reykavík þar sem hann býr. Hann gekk hins vegar nýlega upp að gos­s­töðv­unum á Reykja­nesi.

Gekk 89 ára gamall að eldgosinu: „Stórkostlegt“
Við gosið með dóttur sinni Sveinn er hér ásamt Láru. Honum þótti merki­legt að upp­lifa fastan takt goss­ins.

„Ég fædd­ist og ólst upp í sveit norður í Árnes­hreppi á Ströndum og maður byrj­aði sem krakki að elt­ast við kindur og ganga. Það voru engir bílar eða neitt,“ segir Sveinn Sig­munds­son, sem er 89 ára gam­all og einn þeirra allra reynd­ustu sem gengið hafa að eld­gos­inu í Geld­inga­dölum.

Sveinn hefur gengið langt og séð margt. „Löngu seinna fór ég að ganga meðal ann­ars á Horn­strandir, Jök­ul­firð­ina og Aust­firði. Svo gekk ég nokkrum sinnum á Hvanna­dals­hnjúk; ég var nú far­inn að eld­ast þá. Síðast fór ég þegar ég var orð­inn 69 ára gam­all. Ég hef þrisvar farið upp á hnjúk­inn og aldrei séð neitt. Það hefur alltaf verið vit­laust veður þegar ég hef verið kom­inn upp. Stórhríð. Svona er þetta stundum. Ég gekk stundum um óbyggðir með tjald og svefn­poka. Svo hef ég farið upp á Herðu­breið.“ 

Svekktur að falla ofan í sprungu

Hann datt einu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár