373. spurningaþraut: Hvaða land hvarf af landakortinu?

373. spurningaþraut: Hvaða land hvarf af landakortinu?

Sé klikkað á þennan hlekk hér, þá birt­ist þrautin frá því í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir eld­fjallið sem þarna gýs á eyju nokk­urri árið 2019?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Land nokk­urt í Evrópu var eitt af þeim stærstu og vold­ug­ustu í álf­unni á sínum tíma en fór svo að hnigna og nálæg ríki hirtu af því æ stærri bita 1772, 1793 og 1794, uns það var loks alveg horfið af landa­kort­inu. Hvaða land er hér um að ræða?

2.   Bíómynd ein var gerð árið 1994 og þar leika Tim Robbins og Morgan Freeman aðal­hlut­verkin auk þess sem stjarna úr svart­hvítu mynd­unum, Rita Hayworth, kemur nokkuð við sögu. Hún leikur þó ekki í mynd­inni, enda dó hún 7 árum áður en myndin var gerð. En hvað heitir þessi bíó­mynd?

3.   Myndin er gerð eftir sögu rit­höf­undar sem heitir ...?

4.   Eftir hvern er leik­ritið Sölu­maður deyr?

5.   „Beat It“ heitir fjög­urra mín­útna og átján sek­úndna langt lag sem kom út á stórri hljóm­plötu seint á árinu 1982. Platan varð sú vin­sælasta í sög­unni. Hvað heitir þessi plata?

6.   Á plöt­unni syngur og leikur einn harla frægur tón­list­ar­maður sem einnig semur öll lögin. Og þó — eitt lag, „This Girl Is Mine“, er samið og sungið af öðrum frægum mús­í­k­ant í félagi við aðal­mann­inn. Hvað heitir þessi eini gestur á plöt­unni?

7.   Hvað hét eig­in­kona Seifs þrumuguðs Forn-Grikkja?

8.   „Skaltu það muna, ves­all maður, meðan þú lifir að kona hefur barið þig.“ Í hvaða sögu koma þessi orð fyrir?

9.   Ríkið Austur-Tímor varð sjálf­stætt árið 2002 þegar það braust undan ... hvaða ríki öðru?

10.   Hvaðan er leik­ar­inn víð­frægi Anthony Hopkins? Hér verður svarið að vera nákvæmt.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að neðan heitir Ilona Staller en meðan hún var sem fræg­ust, þá var hún reyndar kunn undir öðru nafni. Hún hefur feng­ist við ýmis­legt um ævina, en nefnið þau TVÖ störf — býsna ólík — sem hún var kunn­ust fyrir að gegna fyrir um 30 árum. Nefna verður bæði til að fá rétt.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Pólland.

2.   Shawshank Redemption.

3.   Stephen King.

4.   Miller.

5.   Thriller.

6.   Paul McCartney.

7.   Hera.

8.   Gísla­sögu Súrs­sonar.

9.   Indónesíu.

10.   Veils. Ekki dugar að segja Bretland, hvað þá England!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er eld­fjallið Stromboli á sam­nefndri smá­eyju út af Ítal­íu­ströndum, en það gýs oftar en ekki.

Á neðri mynd­inni er ítalska KLÁMSTJARNAN Cicciolina sem sat um tíma sem ÞINGMAÐUR á ítalska þing­inu.

***

Þá birt­ist þrautin frá því í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár