372. spurningaþraut: James Bond-lög og stjórnarbyltingar, er það ekki sniðugt?

372. spurningaþraut: James Bond-lög og stjórnarbyltingar, er það ekki sniðugt?

Gær­dags­rautin.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan sem sést hér að ofan með stjúp­sonum sínum tveim? (Hugs­an­lega sjást drengirnir samt ekki í ein­hverjum snjall­símum. En þeir eru þarna samt, drengirnir!)

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Árið 1904 var stofnað fyr­ir­bæri sem hefur síðan verið við lýði og er skamm­stafað TASS. Hvaða fyr­ir­bæri er þetta?

2.   Í hvaða landi var Skáta­hreyf­ingin stofnuð?

3.   Stjórn­ar­bylt­ingar hafa mis­jafnt orð á sér. Ein bylt­ing þótti takast svo vel að hún hefur æ síðan verið kölluð „dýrð­lega bylt­ingin“ — á ensku er notað orða­lagið „the glorious revolution“. Hvar var þessi bylt­ing gerð?

4.   Svokölluð „flauels­bylt­ing“ var hins vegar gerð árið 1989 ... hvar?

5.   Hvaða enska fót­bolta­fé­lag hefur aðsetur á Stamford Bridge?

6.   Hvaða hljóm­sveit flutti lagið Live and Let Die í sam­nefndri James Bond-kvik­mynd?

7.   En hvaða hljóm­sveit söng og lék James-Bond-lagið A View to a Kill?

8.   Hver fékk á dög­unum Ósk­arsverð­laun fyrir besta leik kvenna í aðal­hlut­verki?

9.   Ung söng­kona var framan af einna helst heims­fræg fyrir ára­langt og nokkuð rysj­ótt sam­band sitt við söngv­ar­ann Justin Bieber, en hún er raunar mjög vin­sæl upp á sitt ein­dæmi og lög hennar og plötur selj­ast í millj­óna­vís. Stóru plöt­urnar hennar heita Stars Dance, Revival og Rare. Fyrir rúmum mán­uði gaf hún út stutt­skífu að nafni Revelacíon, þar sem hún syngur aðal­lega á spænsku. Hvað heitir hún?

10.   En fyrr­nefndur Bieber, frá hvaða landi er hann ann­ars?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl­mað­ur­inn sem heilsar svo reffi­lega hægra megin á mynd­inni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Rússnesk frétta­stofa.

2.   Bret­landi.

3.   Bret­landi. Það er stjórn­skip­un­ar­leg spurn­ing hvort sam­einað Bretland var þá orðið til form­lega, en við látum Bretland duga hér.

4.   Í Tékkóslóvakíu. Landið Tékkland var þá ekki orðið til.

5.   Chelsea.

6.   Wings. Paul McCartney dugar ekki, öll hljóm­sveit flutti lagið.

7.   Duran Duran.

8.   McDormand.

9.   Selena Gomez.

10.   Kanada.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Joe, Beau, Jill, Hunter... frá vinstri.

Konan á efri mynd­inni heitir Jill og ber nú eft­ir­nafnið Biden.

Karlinn á neðri mynd­inni er Albert Speer arki­tekt og her­gagna­fram­leiðslsu­ráð­herra Adolfs Hitlers.

***

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár