371. spurningaþraut: Ballet, verkalýðsfélag, höfuðborgir, Julia Marguiles

371. spurningaþraut: Ballet, verkalýðsfélag, höfuðborgir, Julia Marguiles

Hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær, sem öll snýst um Bítlana.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða stöðu­vatn má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver er syðsta höf­uð­borg sjálf­stæðs ríkis í ver­öld­inni?

2.   En sú nyrsta?

3.   „Verka­lýðs­fé­lag eða stétt­ar­fé­lag er félags­skapur sem vinnur að því að bæta kjör og verja hags­muni verka­fólks. Í slíkum félögum eru ein­göngu þeir sem selja vinnu­afl sitt, þ.e. ef félagið stendur undir nafni.“ Hvaða starfs­stétt á Íslandi stofn­aði árið 1887 fyrsta stétt­ar­fé­lagið sem stendur undir nafni sam­kvæmt skil­grein­ing­unni hér að ofan?

4.   Hvaða fyrr­ver­andi þing­maður á Alþingi Íslend­inga stund­aði nám við The Royal Ballet School í London?

5.   „Að sigra heim­inn er eins og að spila á spil með speklings­legum svip og taka í nefið. (Og allt með glöðu geði er gjarnan sett að veði.) Og þótt þú tapir, það gerir ekk­ert til, því það var nefni­lega vit­laust gefið.“ Hver samdi þennan texta?

6.   Björn Þór Sig­björns­son er einn umsjón­ar­manna Morg­un­vakt­ar­innar. Það er útvarps­þáttur — en á hvaða rás?

7.   Í hvaða landi er Góðr­ar­von­ar­höfði?

8.   Julianna Margulies lék í eitt­hvað um 15 ár í mjög vin­sælum banda­rískum sjón­varps­þáttum kringum alda­mótin. Hvað hétu þætt­irnir?

9.   Hvaða vopn not­uðu morð­ingjar Juliusar Caesars til að drepa hann?

10.   Hvaða sam­tök eru FIFA?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða alþjóð­lega stór­fyr­ir­tæki hefur lógóið sem sjá má á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Wellington, Nýja-Sjálandi.

2.   Reykja­vík.

3.   Prent­arar.

4.   Þór­hildur Þor­leifs­dóttir.

5.   Steinn Steinarr.

6.   Rás eitt.

7.   Suður-Afríku.

8.   ER, Bráða­vaktin.

9.   Rýtinga, hnífa. Að nefna sverð er alrangt.

10.   Alþjóða­fót­bolta­sam­bandið.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Kleif­ar­vatn.

Á neðri mynd­inni er vöru­merkið lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins AstraZeneca.

***

Þrautin frá í gær, Bítla­þrautin svo­kall­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár