370. spurningaþraut: Nú eru allar spurningar um Bitlana!

370. spurningaþraut: Nú eru allar spurningar um Bitlana!

Þrautin frá í gær.

***

Þessi þraut fjallar öll um Bítlana.

Skoðið mynd­ina hér að ofan. Hver er mað­ur­inn sem situr þarna við borð með Bítlunum?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Bítl­arnir komu frá borg einni á Bret­landi. Hver er sú?

2.   Hvað nefnd­ist sá klúbbur þar í borg sem Bítl­arnir voru mjög tengdir áður en þeir slógu í gegn á heims­vísu?

3.   Áður en Bítl­arnir urðu heims­frægir spil­uðu þeir líka um tíma í borg­inni utan Bret­lands og þótti sú spila­mennska góð þjálfun fyrir þá. Hvaða borg var það?

4.   Hvað nefnd­ist lið­þjálfi einn sem nefndur er í titli einnar af plötum Bítlanna?

5.   Hver spil­aði yfir­leitt aðal gít­ar­part­ana í lögum Bítlanna?

6.   Hvað hét trommu­leik­ari Bítlanna?

7.   Pete Best var með­limur Bítlanna fyrstu miss­erin. Á hvaða hljóð­færi spil­aði hann?

8.   Hvaða lag Bítlanna var í níu vikur sam­fleytt í efsta sæti vin­sælda­lista á Bret­landi síðla sum­ars og um haustið 1968?  

9.   Þeir Lennon og McCartney sömdu flest lög Bítlanna. En hljóm­sveitin gaf þó aðeins út eina plötu þar sem ÖLL lögin eru skráð á Lennon-McCartney. Hvaða plata var það?

10.   Hvað var fyrsta lagið eftir fyrr­ver­andi Bítil sem komst á topp vin­sælda­list­anna þegar hljóm­sveitin var fyrir bí?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Myndin hér að neðan prýddi einn af plötu­umslögum Bitlanna. Hvað heitir platan sú?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Liverpool.

2.   Cavern.

3.   Hamborg í Þýska­landi.

4.   Pepper — sam­an­ber plötu­heitið Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band.

5.   Harrison.

6.   Ringo Starr.

7.   Trommur.

8.   Hey Jude.

9.   A Hard Day's Night.

10.   My Sweet Lord / George Harrison.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Maðurinn sem situr við borð Bítlanna er Brian Epstein umboðs­maður þeirra lengst af.

Platan sem sést á neðri mynd­inni er Revolver.

***

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár