369. spurningaþraut: Síðasti dagur apríl — þriðjungi ársins er lokið!

Gærdags­þrautin, hún er hér.

***

Fyrri auka­spurning:

Hvað tré má sjá á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.   Hvað heitir fyrir­tækið sem Robert Wessmann stýrir um þessar mundir?

2.   Hvaða bær (það er að segja þorp) stendur við Ytri-Rangá?

3.   Hvað hét hestur Hrafnkels Freysgoða?

4.   Hofið í Efesus var eitt af undrum fornaldar. Í hvaða landi er Efesus núna?

5.   Hvaða málmur er táknaður með stöfunum Au í lotu­kerfinu?

6.   Frá því var greint á dögunum að dýrar íbúðir væru til sölu í Austur­höfn, við hlið Hörpu. Hvað átti sú dýrasta að kosta — fokheld?

7.   Macron heitir forseti Frakk­lands. Hvað er skírnar­nafn hans?

8.   Hver skrifaði bókina Becoming, eða Verðandi, eins og hún var nefnd í íslenskri þýðingu?

9.   Rannveig Rist forstjóri Álversins í Straumsvík vann um tíma á sjó. Hvað var helsta starf hennar þar?

10.   Undir hvaða nafni þekkjum við Daisy Duck?

***

Seinni auka­spurning:

Fyrir áratug fór leikkonan Lilja Nótt með tiltekið hlutverk í Þjóð­leikhúsinu. Þá safnaði Morgun­blaðið saman leikkonum, sem áður höfðu leikið hlut­verkið, og tók mynd af þeim. Hér eru (auk Lilju Nætur sem er fremst) frá vinstri Pálína Jóns­dóttir, Elva Ósk, Herdís Þorvalds­dóttir, Tinna Gunnlaugs­dóttir og Sigrún Edda. En hvaða hlutverk léku þær allar?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.   Alvogen.

2.   Hella.

3.   Freyfaxi.

4.   Tyrklandi.

5.   Gull.

6.   500 milljónir.

7.   Emmanuel.

8.   Michelle Obama.

9.   Vélstjóri.

10.   Andrésína.

***

Svör við auka­spurningum:

Trén eru kirsuberjatré.

Leik­konurnar sex höfðu allar leikið Snæfríði Íslandssól í leikgerð Íslands­klukkunnar.

***

Og gærdags­þrautin, hér er hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár