Formaður Eflingar segir forsetahjónin þátttakendur í „tryllingslegu gróðabraski“

Guðni Th. Jóhann­es­son og Eliza Reid for­seta­hjón leigja út nýkeypta íbúð sína á 265 þús­und krónur á mán­uði. Með­alleigu­verð sam­bæri­legra íbúða er 217 þús­und krónur. Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, spyr hvort for­seta­hjónin séu föst inni í for­rétt­inda­búbblu. For­seta­hjónin fengu utan­að­kom­andi ráð­gjöf um mark­aðs­verð.

Formaður Eflingar segir forsetahjónin þátttakendur í „tryllingslegu gróðabraski“
Spyr hvort engin mann­rétt­indi séu æðri því að fá að græða? Sólveig Anna gagn­rýnir for­seta­hjónin harð­lega fyrir að vera orðin þátt­tak­endur í leigu­braski fjár­magns­eig­enda og eigna­fólks. Mynd: Pressphotos.biz

Nýkeypt fjög­urra her­bergja íbúð for­seta­hjón­anna Guðna Th. Jóhann­es­sonar og Elizu Reid var aug­lýst til leigu á dög­unum á 265 þús­und krónur á mán­uði. Fer­metra­verð leig­unnar leggst á 2.816 krónur en meðal fer­metra­verð sam­bæri­legra íbúða á sama svæði í mars síð­ast­liðnum var 2.307 krónur. Formaður Eflingar segir að hún hefði aldrei getað ímyndað sér að for­seta­hjónin hefðu geð í sér til að ger­ast þátt­tak­endur í græðg­i­svæð­ingu á leigu­mark­aði.

„Mér finnst ótrú­legt að fólk sem er í mestri for­rétt­inda­stöðu í sam­fé­lag­inu geti ekki hamið sig í græðgi,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, en henni var bent á umrædda leigu­aug­lýs­ingu á dög­unum.

Samkvæmt kaup­samn­ingi eign­ar­innar, sem er íbúð á þriðju hæð í fjöl­býl­is­húsi á Hring­braut í Reykja­vík, greiddu for­seta­hjónin 47 millj­ónir króna fyrir eign­ina. Kaup­samn­ingnum var þing­lýst 29. mars síð­ast­lið­inn. Íbúðin var skráð til leigu á fast­eigna­vef Vísis 12. mars síð­ast­lið­inn en hefur nú verið tekin þaðan út, vænt­an­lega sökum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár