Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

SMS Róberts til fyrrverandi samstarfsmanna sinna: „Þú ert dauður ég lofa“

Ró­bert Wessman, for­stjóri Al­vo­gen, sendi rúm­lega 30 hat­urs­full og ógn­andi SMS-skila­boð til fyrr­ver­andi sam­starfs­manna sinna há Acta­vis. Ástæð­an var að ann­ar þeirra hafði bor­ið vitni í skaða­bóta­máli Björgólfs Thors Björgólfs­son­ar gegn hon­um ár­ið 2016. Al­vo­gen lét skoða mál­ið en seg­ir eng­in gögn hafa bent til þess að „eitt­hvað væri at­huga­vert við stjórn­un­ar­hætti Ró­berts.“ Stund­in birt­ir gögn­in.

SMS Róberts til fyrrverandi samstarfsmanna sinna: „Þú ert dauður ég lofa“

„Ég mun taka þig niður ég mun vinna að því að drepa þig og claudio þú ert svo mikill lúser og þú veist það,“ skrifaði Róbert Wessmann, fjárfestir og forstjóri Alvogen, í sms-skilaboðum til fyrrverandi samstarfsmanns síns hjá Actavis í lok janúar 2016. Þetta kemur fram í gögnum sem Stundin hefur undir höndum. Róbert sendi manninum, Mark Keatley, og fyrrverandi forstjóra Actavis, Claudio Albrecht, þá fjölda sms-skilaboða þar sem hann hótaði þeim lífláti, sakaði þá um svik og jós yfir þá fúkyrðum af því Keatley hafði borið vitni fyrir hönd Björgólfs Thors Björgólfssonar í einu af deilumálum fjárfestanna. Róbert og Björgólfur Thor hafa eldað grátt silfur um árabil. 

Í yfirlýsingu frá stjórn Alvogen kemur hins vegar fram að óháð nefnd og alþjóðleg lögfræðistofa hefðu farið yfir ásakanir á hendur Róberti. „Þá bentu engin gögn til þess að eitthvað væri athugavert við stjórnunarhætti Róberts.“ Í kjölfarið hefur náinn samstarfsmaður hans til 18 ára stigið fram og sagt Róbert hafa kýlt sig í andlitið fyrirvaralaust.

Málið sem fyrrverandi samstarfsmaður Róberts vitnaði í var skaðabótamál Björgólfs Thors gegn Róberti og viðskiptafélaga hans, Árna Harðarsyni, þar sem Björgólfur krafði þá um bætur upp á 2 milljónir evra vegna ætlaðra millifærsla þeirra á peningum sem þeir áttu sameiginlega í félaginu Mainsee 516.

Lára Ómarsdóttir, upplýsingafulltrúi fjárfestingarfélags Róberts, segir að fjárfestirinn geri sér grein fyrir því að það hafi verið mistök að senda sms-in: „Þetta voru mistök sem Róbert sá strax eftir og baðst afsökunar.  Róbert gerir sér fullkomlega grein fyrir því að það var rangt af honum að senda skilaboðin og hann sá strax eftir því að hafa sent skilaboðin.  Hann lærði af þessum mistökum og þetta hefur ekki gerst fyrr né síðar.“

33 sms-skilaboð með svívirðingum

Róbert sendi þeim Mark, sem var fjármálastóri Actavis þegar Róbert var forstjóri félagsins fram til ársins 2007, og Claudio samtals 33 sms-skilaboð á innan við sólarhring og hótaði þeim og fjölskyldum þeirra öllu illu. Róbert hafði reynt að hringja tvisvar sinnum til Mark Keatley eftir að hann hafði borið vitni í máli Björgólfs Thors gegn honum en Mark hafði ekki svarað.

Í kjölfarið hóf hann umræddar sms-sendingar. „Segðu halló til claudio ég mun ganga frá ykkur lygara skítahællinn þinn,“ sagði hann í sms-skilaboðum til Mark Keatleys  28. janúar.  Lokaskilaboð Róberts til Claudio Albrechts voru að hann væri dauður: „Bottomlænið er að þú ert dauður ég lofa.“

Þeir Mark og Claudio ráku saman ráðgjafafyrirtæki í lyfjaiðnaði á þessum tíma, Albrech Prock and Partners, og virðist Róbert hafa litið svo á þeir væru sameiginlega í einhvers konar herferð gegn sér. 

Á endanum, rúmum tveimur vikum eftir sms-sendingarnar, komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að Róbert og Árni þyrftu ekki að greiða Björgólfi Thor Björgólfssyni skaðabætur í málinu. Róbert hafði því betur gegn Björgólfi Thor í þessari rimmu þeirra og var sýknaður og vitnisburður Mark Keatleys var ekki afgerandi Björgólfi Thor í vil.

„Næst þegar við erum staðsettir í sömu borg skaltu fela þig skíthællinn þinn.“
Róbert Wessman við Claudio Albrecht
Sagðist ætla að drepa AlbrechtRóbert sagðist ætla að drepa Claudio Albrecht, fyrrverandi forstjóra Actavis.

Óttuðust um velferð sína

Eftir að hafa tekið við sms-skilaboðunum frá Róberti leituðu þeir Mark og Claudio til lögmannsstofu í London sem heitir Grosvenor Law. Lögmannsstofan sendi bréf um hótanir Róberts til bæði fjárfestisins sjálfs og eins til Alvogen. Í bréfinu til Róberts sagði meðal annars: „Við vísum til fjölda sérlega meiðandi, hatursfullra og hótandi sms-skilaboða. Umbjóðendur okkar eru eðlilega í sjokki yfir að hafa fengið þessi sms-skilaboð, þar sem settar eru fram fjölmargar rangar ásakanir gegn þeim sem og hótanir gegn öryggi þeirra. Eðli og tónn þessara sms-skilaboða gefur umbjóðendum okkar tilefni til að ætla að hegðun þín sé ekki rökrétt og að þú kunnir að grípa til aðgerða gegn þeim sem enn frekar kunna að ógna velferð þeirra, líkt og þú hefur hótað.“

Eitt af því sem Róbert hafði sagt í skilaboðum til Marks var: „Næst þegar við erum staðsettir í sömu borg skaltu fela þig skíthællinn þinn.“

Enska lögmannstofan lýsti því svo af hverju hátterni Róberts varðaði við lög Englands og Íslands . Lögmannsstofan sagði að Róbert kynni að sæta ákæru í Englandi vegna þess og jafnvel hljóta fangelsisdóm í allt að 2 ár þar sem um væri að ræða alvarlega áreitni. Einnig kom fram að sms-skilaboðin væru klárt tilefni til lögreglurannsóknar og eftir atvikum ákæru á Íslandi. 

Þá kom enn frekar fram að þeir Mark og Claudio gætu krafist skaðabóta af Róberti vegna málsins. 

Lára Ómarsdóttir segir að Róber Wessman hafi ekki greitt þeim Claudio og Robert peninga fyrir að þegja um málið.  „Nei hann hafði hins vegar samband við þá og baðst afsökunar á framferði sínu.“

Enska lögmannsstofan beindi einnig erindi sínum til stjórnar Alvogen fyrir hönd þeirra Marks og Claudios þar sem mat hennar var að Alvogen væri samábyrgt fyrir hegðun Róberts. Í bréfinu til stórnar Alvogen sagði: „Við vekjum athygli ykkar á því þar sem umbjóðendur okkar hafa áhyggjur af því að háttsettur stjórnandi, í reynd andlit fyrirtækis ykkar út á við gagnvart markaðnum, skuli hafa samband við umbjóðendur okkar, sem einnig eru sérfræðingar á lyfjamarkaði, með þeim hætti og þeim tóni sem hann gerði.“

Lögmannsstofan sagði við stjórn Alvogen að umbjóðendur þeirra litu svo á að ef hótanir Róberts myndu halda áfram þá myndu þeir grípa til viðeigandi ráðstafana gagnvart Alvogen. „Við vonum að þess gerist ekki þörf og að þið munið geta haft eftirlit með og stjórnað hátterni forstjóra ykkar með viðeigandi hætti,“ segir í bréfinu.

„Ég vil nota þetta tækifæri til að heils hugar biðja Hr. Keatley og Hr. Albrecht afsökunar á því að valdið þeim hugarangri í síðustu viku.“
Róbert Wessman

Róbert baðst afsökunar

Í gögnunum sem Stundin hefur undir höndum eru einnig bréf frá Róberti Wessman og stjórn Alvogen. Í bréfinu frá stjórn Alvogen, sem Árni Harðarson lögmaður skrifar fyrir hönd félagsins, kemur fram að stjórnin líti málið „alvarlegum“ augum. „Við fullvissum ykkur um að við hjá Alvogen Group lítum málið mjög alvarlegum augum.“

Samt sem áður taldi stjórnin að það væri Róberts sjálfs að svara fyrir það jafnvel þó að hann væri forstjóri félagsins. 

 Róbert baðst afsökunar á hegðun sinni með bréfi til ensku lögmannsstofunnar þann 3. febrúar 2016. „Ég vil nota þetta tækifæri til að heils hugar biðja Hr. Keatley og Hr. Albrecht  afsökunar á því að valdið þeim hugarangri í síðustu viku.“ Róbert hét því svo að hafa ekki samband við þá aftur með neinum hætti. 

Sent upplýsingar um RóbertHalldór Kristmannsson hefur sent upplýsingar um starfshætti Róbert Wessman til stjórnar Alvogen. Hann starfaði sem hægri hönd Róberts í nærri tvo áratugi.

Vill að Róbert hætti sem forstóri Alvogen

Halldór Kristmannsson, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Alvogen og talsmaður Róberts til margra ára, sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem hann kemur inn á efni sms-skilaboðanna til Albrechts og Keatley án þess þó að ræða þau í smáatriðum. Morgunblaðið greindi fyrst fjölmiðla frá yfirlýsingunni í blaði sínu í dag. 

Halldór telur að Róbert eigi að láta af störfum sem forstjóri Alvogen vegna þessa máls og annarra sem hann hefur orðið vitni að í störfum sínum fyrir hann. „Ég tel að morðhótanir, líkamsárásir og svívirðilegar ásakanir, er varða meinta óvildarmenn og ærumeiðingar í þeirra garð, sé í raun óverjandi hegðun forstjóra alþjóðlegra fyrirtækja. Þetta hlýtur að vekja upp spurningar um hæfi hans sem stjórnanda.  Hinsvegar vona ég að þessi fyrirtæki blómstri í framtíðinni, þannig að ég sem hluthafi, geti verið stoltur af framgangi þeirra,“ segir Halldór í yfirlýsingunni. 

Halldór telur að niðurstaða Alvogen á starfsháttum Róberts Wessman, sem greint var frá í síðustu viku, sé „hvítþvottur“. 

Róbert segir tilgang Halldórs fjárhagslegan

Róbert Wessman sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem hann sagði að stjórn Alvogen hefði látið skoða ásakanir Halldórs á hendur honum og ekki talið rétt að aðhafast neitt. Hann telur hvata Halldórs vera fjárhagslega: „Það er augljóst af bréfasendingum lögmanna Halldórs, Quinn Emanuel, að ásakanir hans eru gerðar í fjárhagslegum tilgangi enda koma þar fram kröfur um greiðslur til handa honum. Eins og fram hefur komið var fengin óháð alþjóðleg lögmannsstofa til að fara ofan í saumana á kvörtunum Halldórs. Talað var við tugi starfsmanna og farið yfir fjölda gagna og niðurstaðan var skýr. Til að tryggja enn betur trúverðugleika þeirrar skoðunar sem fram fór var önnur óháð lögmannsstofa fengin til að fara yfir ferli skoðunarinnar og staðfesta þá.Fyrir mig eru þessar ásakanir mjög mikil vonbrigði enda vegið að mínum starfsheiðri og persónu. Mér þykir mjög miður að samstarfi okkar Halldórs til 18 ára hafi lokið með þessum hætti,“ segir Róbert. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Róbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tapaði 332 milljónum krónum á dag á fyrsta ársfjórðungi
GreiningRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Al­votech tap­aði 332 millj­ón­um krón­um á dag á fyrsta árs­fjórð­ungi

Fjöl­marg­ir fjár­fest­ar, með­al ann­ars ís­lensk­ir líf­eyr­is­sjóð­ir, hafa veðj­að stórt á að Al­votech muni með tíð og tíma verða mylj­andi pen­inga­vél. Hökt hef­ur ver­ið á því ferli og á síð­ustu 27 mán­uð­um hef­ur fé­lag­ið tap­að um 180 millj­örð­um króna. Stjórn­end­ur Al­votech eru hins veg­ar bratt­ir og spá því að tekj­ur fé­lags­ins muni allt að fimm­fald­ast milli ára.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Lífeyrissjóður greiddi atkvæði gegn kaupréttum stjórnar Alvotech
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Líf­eyr­is­sjóð­ur greiddi at­kvæði gegn kauprétt­um stjórn­ar Al­votech

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tæk­ið Al­votech hef­ur veitt fjór­um óháð­um stjórn­ar­mönn­um kauprétti í fé­lag­inu. Stjórn fé­lags­ins fékk heim­ild til að veita öll­um stjórn­ar­mönn­um slíka kauprétti en þeir stjórn­ar­menn sem eru tengd­ir Al­votech, með­al ann­ars Ró­bert Wess­mann og Árni Harð­ar­son hafa af­sal­að sér þess­um kauprétt­um. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi greiddi at­kvæði gegn kauprétt­ar­kerf­inu.
Háskólinn hjálpaði Róberti að eignast verksmiðjuna fyrir ekkert
SkýringRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Há­skól­inn hjálp­aði Ró­berti að eign­ast verk­smiðj­una fyr­ir ekk­ert

Við­skipt­in með lóð­ina í Vatns­mýri þar sem lyfja­verk­smiðja Al­votech reis vöktu til­tölu­lega litla at­hygli fyr­ir ára­tug síð­an. Í við­skipt­un­um voru Reykja­vík­ur­borg og Há­skóli Ís­lands hins veg­ar að af­henda Ró­berti Wessman af­not af gæð­um í op­in­berri eigu á silf­urfati, sem hann hef­ur síð­an not­að til að hagn­ast æv­in­týra­lega á í gegn­um lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tæk­ið Al­votech.
Félag Róberts seldi skuldabréf í Alvotech á 12 milljarða rétt fyrir verðhrun
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Fé­lag Ró­berts seldi skulda­bréf í Al­votech á 12 millj­arða rétt fyr­ir verð­hrun

Fé­laga­net Ró­berts Wessman hef­ur inn­leyst hagn­að af sölu lyfja­verk­smiðj­unn­ar í Vatns­mýri á sama tíma og hluta­bréfa­verð Al­votech hef­ur hrun­ið. Árni Harð­ar­son seg­ir að sala fé­lags Ró­berts á skulda­bréf­um sem það fékk sem greiðslu fyr­ir verk­smiðj­una sé til­vilj­un og teng­ist ekk­ert synj­un Banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins á mark­aðs­leyfi til Al­votech.

Mest lesið

Sér erfiðleika foreldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“
5
Úttekt

Sér erf­ið­leika for­eldra og hugs­ar: „Þetta vil ég ekki“

Ing­unn Lára Kristjáns­dótt­ir er rúm­lega þrí­tug og hef­ur aldrei fund­ið löng­un til barneigna. Hún tel­ur að inn í það spili ónóg­ur stuðn­ing­ur við barna­fjöl­skyld­ur í ís­lensku sam­fé­lagi. Aðjunkt í fé­lags­fræði seg­ir ástæð­urn­ar fyr­ir fallandi fæð­ing­ar­tíðni gríð­ar­lega flókn­ar en að kerf­ið hafi að hluta brugð­ist fjöl­skyld­um, ekki síst mæðr­um.
Verðbólga hækkar meira en væntingar gerðu ráð fyrir
8
FréttirEfnahagsmál

Verð­bólga hækk­ar meira en vænt­ing­ar gerðu ráð fyr­ir

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,46% frá því í júní. Ár­s­verð­bólga mæl­ist nú 6,3 pró­sent en var kom­in nið­ur í 5,8 pró­sent síð­asta mán­uði. Það er meiri hækk­un en spár við­skipta­bank­anna gerðu ráð fyr­ir. Auk­in verð­bólga þýð­ir að minni lík­ur eru á því að stýri­vaxta­hækk­an­ir muni eiga sér stað á þessu ári eins og von­ast var til.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Uppskera íslenskra kartaflna skemmdist á 48 tímum: „Aldrei séð annað eins“
1
FréttirNeytendamál

Upp­skera ís­lenskra kart­aflna skemmd­ist á 48 tím­um: „Aldrei séð ann­að eins“

Heit­ar um­ræð­ur sköp­uð­ust á Face­book í gær eft­ir að Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir greindi frá því að heill poki af nýj­um kart­öfl­um hefði reynst skemmd­ur. Gunn­laug­ur Karls­son, for­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, seg­ist aldrei hafa séð ann­að eins. Upp­sker­an hafi skemmst á tveim­ur sól­ar­hring­um.
Öskraði í sturtu því hún mátti ekki hitta dóttur sína
2
Viðtal

Öskr­aði í sturtu því hún mátti ekki hitta dótt­ur sína

Guð­laug Elísa­bet Ólafs­dótt­ir, kúa­bóndi og leik­kona, er orð­in goði. Nýi goð­inn hef­ur upp­lif­að gleði og sorg­ir og varð líf­ið hel­víti lík­ast þeg­ar hún fékk ekki að um­gang­ast barn­unga dótt­ur sína, sem frændi henn­ar og mað­ur hans höfðu ætt­leitt. Stúlk­an vildi fyr­ir nokkr­um ár­um hitta móð­ur sína og eru sam­skipt­in við feð­urna góð í dag en lær­dóm­ur­inn var mik­ill: „Ég hef trú á að það hjálpi mér við að um­gang­ast fólk í djúpu og miklu sorg­ar­ferli.“
„Enginn sem tekur við af mér“
5
Viðtal

„Eng­inn sem tek­ur við af mér“

Það er barn­ing­ur fyr­ir marga að vera sjálf­stætt for­eldri á ein­um tekj­um. En hver er stað­an ef for­eldr­ið er al­far­ið eitt með barn­ið? Hvað ef barn­ið glím­ir við sér­tæk­ar grein­ing­ar? Alma Hrönn Hrann­ar­dótt­ir og Diljá Ámunda­dótt­ir Zoëga eru báð­ar ein­ar á vakt­inni, alltaf. Mæð­urn­ar hafa glímt við heilsu­brest vegna álags, með­vit­að­ar um að ef eitt­hvað kem­ur fyr­ir þær er eng­inn sem tek­ur við af þeim.

Mest lesið í mánuðinum

Uppskera íslenskra kartaflna skemmdist á 48 tímum: „Aldrei séð annað eins“
1
FréttirNeytendamál

Upp­skera ís­lenskra kart­aflna skemmd­ist á 48 tím­um: „Aldrei séð ann­að eins“

Heit­ar um­ræð­ur sköp­uð­ust á Face­book í gær eft­ir að Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir greindi frá því að heill poki af nýj­um kart­öfl­um hefði reynst skemmd­ur. Gunn­laug­ur Karls­son, for­stjóri Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna, seg­ist aldrei hafa séð ann­að eins. Upp­sker­an hafi skemmst á tveim­ur sól­ar­hring­um.
Þau sem hafa hagnast ævintýralega á Þorpinu
2
FréttirHúsnæðismál

Þau sem hafa hagn­ast æv­in­týra­lega á Þorp­inu

Ár­ið 2021 keypti hóp­ur fjár­festa í gegn­um eign­ar­halds­fé­lag­ið Þorp­ið 6 ehf. lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á Ár­túns­höfða í Reykja­vík fyr­ir 7,4 millj­arða króna. Fyrr á þessu ári voru lóða­rétt­ind­in seld fyr­ir ell­efu millj­arða króna án þess að nokk­uð hafi ver­ið byggt á svæð­inu. Við­skipt­in sýna vel hvernig fjár­fest­ar geta hagn­ast æv­in­týra­lega með því að kaupa og selja lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á til­tölu­lega skömm­um tíma.
Greiddu 17 milljónir fyrir skýrslu um stöðu drengja
4
Fréttir

Greiddu 17 millj­ón­ir fyr­ir skýrslu um stöðu drengja

Skýrsla um stöðu drengja í skóla­kerf­inu sem unn­in var að beiðni mennta- og barna­mála­ráð­herra og há­skóla-, iðn­að­ar- og ný­sköp­un­ar­ráð­herra kostaði sam­an­lagt um 13,7 millj­ón­ir króna auk virð­is­auka­skatts og hljóð­ar heild­ar­upp­hæð­in því upp á rúm­ar 17 millj­ón­ir. Tryggvi Hjalta­son, grein­andi hjá CCP, er eini höf­und­ur skýrsl­unn­ar. Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist hann hafa unn­ið að skýrsl­unni sam­hliða öðr­um störf­um en vinn­an tók um eitt og hálft ár.
Hulduheildsali flytur inn hundruð tonna af kjöti
5
RannsóknSamkeppnisundanþága í Landbúnaði

Huldu­heild­sali flyt­ur inn hundruð tonna af kjöti

Ris­ar á ís­lensk­um kjöt­mark­aði, sem fengu í vor um­deild­ar und­an­þág­ur frá sam­keppn­is­lög­um til þess að verj­ast sam­keppni að ut­an, verða á þessu ári um­fangs­mest­ir í kjöt­inn­flutn­ingi og því keppi­naut­ar sjálfs sín. „Von­brigði,“ seg­ir formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar. Um­fangs­mik­il heild­sala á hundruð­um tonna af inn­fluttu kjöti virð­ist fyrst og síð­ast leiktjald fyr­ir öfl­ug­asta hags­muna­afl­ið gegn inn­flutn­ingi land­bún­að­ar­vara.
Öskraði í sturtu því hún mátti ekki hitta dóttur sína
6
Viðtal

Öskr­aði í sturtu því hún mátti ekki hitta dótt­ur sína

Guð­laug Elísa­bet Ólafs­dótt­ir, kúa­bóndi og leik­kona, er orð­in goði. Nýi goð­inn hef­ur upp­lif­að gleði og sorg­ir og varð líf­ið hel­víti lík­ast þeg­ar hún fékk ekki að um­gang­ast barn­unga dótt­ur sína, sem frændi henn­ar og mað­ur hans höfðu ætt­leitt. Stúlk­an vildi fyr­ir nokkr­um ár­um hitta móð­ur sína og eru sam­skipt­in við feð­urna góð í dag en lær­dóm­ur­inn var mik­ill: „Ég hef trú á að það hjálpi mér við að um­gang­ast fólk í djúpu og miklu sorg­ar­ferli.“
„Ég var bara niðurlægð“
9
Viðtal

„Ég var bara nið­ur­lægð“

Séra Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, bisk­up Ís­lands, vill skila skömm­inni til kirkju­þings þar sem hún upp­lifði nið­ur­læg­ingu eft­ir að óvissa varð uppi um lög­mæti embætt­is­gjörða henn­ar. Hún seg­ir að kirkju­þing hafi átt að greiða úr mál­inu og eyða óvissu um stöðu henn­ar. Agnes tel­ur að karl­kyns bisk­up hefði aldrei þurft að þola slíka fram­komu af hálfu kirkju­þings en hún er fyrsta kon­an sem er kjör­in bisk­up.
Þurftu að kalla fólk niður af fjalli til að færa bílana
10
Fréttir

Þurftu að kalla fólk nið­ur af fjalli til að færa bíl­ana

Daní­el Freyr Jóns­son, svæð­is­sér­fræð­ing­ur í nátt­úru­vernd­art­eymi, seg­ir stans­laus­ar tepp­ur hafa ver­ið á bíla­stæð­um við Land­manna­laug­ar áð­ur en far­ið var að inn­heimta bíla­stæða­gjöld á álags­tím­um í sum­ar. Kalla hafi þurft bíl­stjóra nið­ur af fjöll­um til að færa bíl­ana til að greiða leið fyr­ir rút­um. Nýja fyr­ir­komu­lag­ið hafi hlot­ið góð við­brögð hjá gest­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu