Gjörningur sem hélt hann væri fyrirtæki

Á sýningunni Drop in húsgögn getur fólk pantað sérsmíðuð húsgögn sem framleidd eru samstundist og afhent klukku­tíma síðar. Að sýningunni standa myndlistar­mennirnir Almar Steinn Atlason og Hákon Bragason sem hafa enga fyrri reynslu af húsgagna­smíði.

Þann 18. mars síðastliðinn opnuðu myndlistar­mennirnir Almar Steinn Atlason og Hákon Bragason dyrnar upp á gátt, Drop in húsgögn, engar tíma­pantanir, smíða­verkstæði staðsett í Gunnfríðar­gryfju í Ásmundarsal. Saman mynda þeir lista­tvíeykið Brjálað að gera og hafa síðustu vikur framið praktískan gjörning í gryfjunni og smíðað húsgögn/skúlptúra eftir pöntunum, gegn vægu gjaldi. „Við setjum þetta upp sem skemmtilega upplifun, að koma á verkstæði lista­manna þar sem ríkjandi er stemning, viðar­ilmur og kaffi­brúsar,“ lýsa Almar og Hákon.

Dúóið hefur unnið mikið saman í gegnum tíðina og hafa alltaf tekið ríkan þátt í sköpunar­ferli verka hvors annars, en þetta er í annað skiptið sem þeir setja upp sýningu saman. Verk­stæðið verður opið fram til 1. apríl svo það er enn tími til að komast í hóp ánægðra viðskipta­vina. Opnunar­tími er frá níu til fimm alla virka daga og frá tíu til fimm um helgar. 

Engar tímapantanir leyfðar

Verkefnið lýsir sér þannig að fólk getur komið og pantað sérsmíðuð húsgögn, sérsniðin að þeirra þörfum, sem framleidd eru samstundis og afhent klukku­stund síðar. Almar og Hákon þurfa að hafa hraðar hendur og klára húsgögnin á meðan fólk hoppar í búð eða fær sér kaffi­bolla. En það myndast góð stemning og kjör­aðstæður til heita­ports­umræðna. „Við erum líka með biðstofu þar sem hægt er að bíða eftir næsta lausa tíma.“ Hillbilly hefur einmitt dálæti af biðstofum og mikill plús að skúlptúr eða húsgagn bíði manns að bið lokinni en ekki tungu­spaði í koki. „Við höfum báðir alltaf verið heillaðir af fegurðinni á dekkja­verkstæðum, í nörda­vöru­verslunum og þesslags menningar­kimum. Okkur langaði að sýna slíka fegurð á safni.“

Hugmyndin að verk­efninu kviknaði vegna söfnunar­áráttu myndlistar­mannanna tveggja og fannst þeim þeir þurfa á einhvern hátt að réttlæta öll pláss­freku verkfærin sem þeir höfðu sankað að sér í gegnum tíðina. Þeir fóru rakleiðis á Youtube og kenndu sjálfum sér á öll þessi verkfæri. „Svo höfum við heyrt að það sé næstum jafn lítið að hafa uppúr húsgagna­smíði og myndlist svo við ákváðum að færa okkur upp um tekjuþrep í hægaganginum,“ útskýra þeir. „Úthald, praktískir gjörningar og trésmíði eru líka allt bara svo dásam­legir hlutir.“

Ekkert ábyrgðarskírteini

Verð­lagningu er haldið í lágmarki svo sem flestir geti orðið sér úti um sérsmíðuð húsgögn á methraða. Húsgögnin eru öll framleidd án ábyrgðar­skírteinis en myndlistar­mennirnir tveir setja sér og viðskipta­vinum sínum reglur um framkvæmd húsgagn­anna og áskilja sér heimild til að túlka pöntun, teikningu, mæli­einingar og efni eftir eigin hentisemi. „Efniviðurinn er meira og minna timbur, aðallega ódýrt timbur nema annað sé sérstak­lega tekið fram.“ Varðandi hvers lags húsgögn sé hægt að panta segjast þeir vera opnir fyrir öllu. „Við höfnum engri pöntum, gerum alltaf eitthvað,“ útskýra þeir og er Hillbilly forvitin um hvort dúóið hafi reynslu af húsgagna­smíði og svarið er einfalt: „Ef við hefðum einhverja haldbæra reynslu af húsgagna­smíði hefðum við aldrei vaðið svona kátir út í þetta verkefni.“ Hákon smíðaði að vísu einu sinni kaffiborð en Almar segist verða feiminn og fá aðsvif í nálægð sand­pappírs. Hillbilly glottir að tilhugsuninni.

Hratt, flott og ódýrt

Drop in Húsgögn, engar tíma­pantanir er samfélags­rýninn gjörn­ingur. Almar og Hákon vinna með mörk mynd­listar og hönnunar, gjörninginn sem praktískt listform og hraðann sem við búum í í samfélaginu í dag.

Aðspurðir hvernig þeir vilja tengja verkefnið neyslu­samfélaginu svara þeir: „Við elskum hratt, flott og ódýrt. Hvað er hægt að gera á klukku­tíma? Við vitum það ekki en okkur langar gjarnan að prófa.“ Þeir velta upp spurningum á borð við „Afhverju er þvottavél sem þvær á hálftíma góð en þvottavél sem þvær á þremur klukku­stundum léleg ef þvotturinn kemur jafn­hreinn úr báðum? Hvers vegna kostar full vínflaska í ríkinu 1.800 kr. en tóm vínflaska í húsgagna­verslun 7.000 kr.? Myndum við ráða okkur í vinnu upp á 1.800 kr.- á tímann? Myndum við vinna í klukku­stund í skiptum fyrir vínflösku?“ Þeir hafa engin svör en ákváðu þó að vaða blátt áfram í þetta verkefni og hafa hingað til fengið góð viðbrögð. „Við erum himin­lifandi, finnum fyrir miklum meðbyr og stuðningi úr flokknum. Næstum því meira að segja þrýstingi eftir breyttri forustu úr gras­rótinni.“ Það endar kannski með því að þessir ódýru hlutir endi sem rándýr uppboðs­fengur í fram­tíðinni. Hver veit svosem?

Dúóið heldur áfram að varpa spurningum út í algleymið. „Af hverju erum við með borð­stofuborð sem passar næstum því í stofunni og afhverju er helvítis skógrindin alltaf að detta? Við erum bara svona að spekúlera þetta. Værum við klukku­tíma að blása gler­flösku, stappa berfættir á nokkrum berja­runnum og hella svo sullinu í flöskuna? Nei maður bara spyr sig svona af og til.“

Í Covid fréttum segir dúóið það vera dásam­legan tíma fyrir unga myndlistar­menn og kvarta ekki. „Meiri tími fyrir stúdíó­vinnu, minni aðsókn á sýningar og aukið umburðar­lyndi fyrir óvinnandi auðnu­leysingjum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár