„Samherji kastaði stóru neti og veiddi eina siðanefnd“

Frétta­fólk á Rík­is­út­varp­inu er harð­ort um úrskurð siða­nefndar RÚV sem kvað á um alvar­legt brot Helga Seljan, frétta­manns Kveik, gagn­vart Samherja. Félag frétta­manna krefst þess að úrskurð­ur­inn verði end­ur­skoð­aður vegna stað­reynda­villu.

„Samherji kastaði stóru neti og veiddi eina siðanefnd“
Skrif­stofur Rík­is­út­varpið Stjórn Félags frétta­manna full­yrðir að villa sé í úrskurði siða­nefndar RÚV og vill að málið verði tekið upp að nýju. Mynd: Kristinn Magnússon

Stjórn Félags frétta­manna, stétt­ar­fé­lags frétta­fólks Rík­is­út­varps­ins, hefur sent frá sér harð­orða yfir­lýs­ingu um úrskurð siða­nefndar Rík­is­út­varps­ins í kæru útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja gegn ell­efu starfs­mönnum í 45 liðum. „Samherji kastaði stóru neti og veiddi eina siða­nefnd,“ segir í yfir­lýs­ingu stjórnar félags­ins, sem send hefur verið til fjöl­miðla. 

Samherji kærði starfs­menn RÚV meðal ann­ars fyrir að „læka“ færslur og deila efni á Facebook, í mörgum til­fellum svörum við ásök­unum og umkvört­unum Samherja. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar var að Helgi Seljan, frétta­maður Kveiks, einn þriggja þeirra sem fjöll­uðu um mútu­greiðslur Samherja til emb­ættis- og stjórn­mála­manna í Namibíu, hefði framið „alvar­legt“ brot á siða­regl­unum með því að segja sína per­sónu­legu skoðun og „tala niður til“ stjórn­enda Samherja með háði, meðal ann­ars með því að kalla for­stjór­ann „gæsk“ og segja hann „ball­anser­aðan“. Helga er, sam­kvæmt siða­reglum RÚV, óheim­ilt að tjá sína „per­sónu­legu afstöðu“.

Vöruðu við banni á tjáningu

Sú grein siða­reglna starfs­manna Rík­is­út­varps­ins sem Helgi var fund­inn sekur um að brjóta bannar frétta­fólki í reynd að taka þátt í þjóð­fé­lags­um­ræðu: „Starfs­fólk, sem sinnir umfjöllun um fréttir, frétta­tengt efni og dag­skrár­gerð tekur ekki opin­ber­lega afstöðu í umræðu um pólítísk mál­efni eða umdeild mál í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni, þ.á.m. á sam­fé­lags­miðlum.“

„Siða­reglur RÚV voru mjög umdeildar um leið og þær voru settar. Fjöl­margir töldu að með ákvæði um sam­fé­lags­miðla væri brotið gegn tján­ing­ar­frelsi starfs­manna. Einnig hefur verið bent á að hægt væri að mis­nota siða­regl­urnar til að reyna að koma höggi á starfs­menn. Hvort tveggja hefur nú sann­ast,“ segir í yfir­lýs­ingu Félags frétta­manna.

Samherji leggur fram kröfu

Þá varar félagið við því að Samherji hefur þegar lagt fram kröfu, byggða á nið­ur­stöðu siða­nefnd, um að Helgi Seljan fjalli ekki lengur um mál­efni Samherja og verði form­lega áminntur. „Stjórn­endur Samherja hafa þegar notað nið­ur­stöðu siða­nefndar til að krefj­ast þess að við­kom­andi frétta­maður, Helgi Seljan, fjalli ekki um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins og að hann verði áminntur. Stjórn­endur RÚV hafa sem betur fer borið gæfu til að segja að úrskurð­ur­inn hafi ekki áhrif á störf hans. Stjórn Félags frétta­manna tekur fram að Helgi hefur ásamt sam­starfs­mönnum sínum, Aðal­steini Kjart­ans­syni og Stefáni Drengs­syni, unnið þrek­virki í að fjalla um mál­efni Samherja og dótt­ur­fé­laga þess og ásak­anir um ólög­legt athæfi í starf­semi félag­anna erlendis. Allur frétta­flutn­ingur þeirra af mál­inu hefur byggst á þrot­lausri og vand­aðri vinnu og ítar­legum rann­sóknum. Stjórn­endur Samherja hafa kosið að svara ekki spurn­ingum og koma skoðun sinni ekki á fram­færi eins og þeim hefur ítrekað verið boðið að gera. Þess í stað hafa þeir birt áróð­urs­mynd­bönd og vef­færslur þar sem veist er að þeim sem segja frétt­irnar, einkum og sér í lagi Helga, með inn­stæðu­lausum ásök­unum.“

Félagið fer fram á endurskoðun úrskurðarins

Meðal ummæl­anna sem Samherji kærði og siða­nefnd segir að hafi verið alvar­legt brot á sið­ar­erglum er Facebook-færsla Helga Seljan sem snýr að öðru fyr­ir­tæki en Samherja. Þetta segir stjórn Félags frétta­manna að sé „aug­ljós og vand­ræða­leg stað­reynda­villa“.

„Nefndin und­ir­strikar fyrr­nefnd ummæli sem hún segir til marks um að ummælin séu meðal þeirra sem hún gerir einkum athuga­semdir við. Þessi nið­ur­staða er sér­stak­lega merki­leg í ljósi þess að bæði í svörum Helga Seljan og lög­manns Samherja til nefnd­ar­innar kom fram að ummælin snú­ast ekki um Samherja. Það vekur spurn­ingar um hversu vel nefndin kynnti sér gögn máls­ins. Ekki er nóg með að villan sé aug­ljós og vand­ræða­leg heldur hlýtur hún að kalla á end­ur­skoðun úrskurð­ar­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár