330. spurningaþraut: Frægir Frakkar

Þrautin frá í gær.

***

Spurningarnar í dag eru allar um fræga Frakka.

Mynda­spurningarnar snúast um skáldaðar persónur, en hinir um alvöru fólk.

Spurningin sú hin efri hjlóðar svo:

Hvar koma þessar persónurnar hér að ofan við sögu?

***

Aðal­spurningar:

1.   Hvað heitir þessa franska filmstjarna sem hefur leikið í fjölda góðra mynda í heima­landi sínu en líka dúkkað stöku sinnum upp í alþjóð­legum myndum af ýmsu tagi, eins og skrímsla­myndinni Godzilla frá 2013?

***

2.   Þessi hóf feril sinn sem hermaður — eins og sjá má — en síðan fór hann út í pólitík. Hvað hét hann?

***

3.   Hvað hét þessi fræga listakona?

***

4.   Þessi lét líka að sér kveða í listum, en var þó á endanum frægari fyrir annað?

***

5.   Þessi hér hefur verið einhver virtasta kvikmynda­stjarna Frakk­lands í áratugi og lætur ekki bilbug á finna.

***

6.   Þessi  hér var einn frægasti tísku­hönnuður um sína daga og hugsaði þó ekki bara um föt og  fylgi­hluti, heldur lét sér jafnvel lyktina varða. Hvað hét hún?

***

7.   Þessi kona hefur verið í framboði til forseta Frakk­lands en ekki náð árangri — sem betur fer, mundu flestir segja. Hvað heitir hún?

***

8.   Það er nú nokkuð síðan þessi lét að sér kveða. En hann var fyrirferðar­mikill þá. Hvað hét hann?

***

9.   Alltaf voða mikið grænt í kringum þennan. Hvað heitir hann?

***

10.   Þessi kona er borgar­stjóri í París og ýmsir telja að hún eigi ágæta möguleika á að verða fyrsta konan sem hreppi forseta­embættið í Frans. Hvað heitir hún?

***

Seinni auka­spurningin:

Þarna sjást sjónvarps­persónurnar Laure og Gilou (þau eru leikin af Caroline Proust og Thierry Godard). Þau hafa leikið í frægum frönskum löggu­þáttum sem eru nú að renna sitt skeið á enda. Hvað heitir serían?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.   Juliette Binoche.

2.   De Gaulle.

3.   Edith Piaf.

4.   Brigitte Bardot.

5.   Catherine Deneuve.

6.   Coco Chanel.

7.   Marine le Pen.

8.   Napoleon.

9.   Zidane.

10.   Anne Hidalgo.

***

Svör við auka­spurningum:

Á fyrri myndinni eru persónur úr sögunum um Asterix, eða Ástrík.

Þau skötuhjúin á neðri myndinni hafa leikið í þátta­röðinni Spiral og/eða Engrenages.

***

 

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár