327. spurningaþraut: Hér má meðal annars sjá 2 dýrustu málverk heims

327. spurningaþraut: Hér má meðal annars sjá 2 dýrustu málverk heims

Hér er hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Auka­spurn­ingar:

Hér að ofan má sjá dýrasta mál­verk heims um þessar mundir. Það seld­ist á upp­boði fyrir 51 millj­arð króna fyrir fjórum árum. Hver mál­aði það?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Mikil mót­mæli gegn kyn­þátta­mis­rétti og -kúgun brut­ust út á síð­asta ári eftir að svartur maður að nafni George Floyd var drep­inn af lög­reglu­mönnum í ... hvaða borg í Banda­ríkj­unum?

2.   Breskur fót­bolta­maður, leik­maður Manchester United, vakti athygli á síð­asta ári fyrir her­ferð sem hann hóf og gekk út á að tryggja börnum ókeypis skóla­mál­tíðir í covid-fár­inu. Hvað heitir þessi ungi maður?

3.   Hvaða íslenski ráð­herra vakti athygli þegar hún hitti vin­konur sínar síð­ast­liðið sumar og ekki þótti vera nóg­sam­lega gætt að sótt­vörnum?

4.   Hvaða for­sæt­is­ráð­herra í Evrópu fékk covid-19 á síð­asta ári og mun hafa verið mjög alvar­lega veikur um tíma, jafn­vel settur í önd­un­ar­vél?

5.   Hvar kom niður smá­st­irnið eða lof­steinn­inn sem varð bana­biti risa­eðl­anna fyrir 65 millj­ónum ára? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

6.   Hvaða sam­fé­lags­miðla app hugð­ist Donald Trump banna síð­ast­liðið haust?

7.   Við hvað starf­aði Hall­grímur Pét­urs­son lengst af?

8.   Þegar síð­ast frétt­ist: Hver á flesta fylgj­endur á Twitter hér í ver­öld?

9.   Þann 10. maí 1940 gerð­ist afdrifa­ríkur atburður á Íslandi. Hver var sá?

10.   Úti í hinum stóra heimi gerð­ist sama dag annar atburður, sem verður að við­ur­kenn­ast að skipti þó öllu meira máli í hinu heims­sögu­lega sam­hengi hlut­anna. Hvað gerð­ist úti í heimi 10. maí 1940?

***

Auka­spurn­ingar:

Hér að neðan má sjá næst­dýrasta mál­verk í heimi. Þetta abstrakt­verk seld­ist á 41 millj­arð fyrir sex árum. Það var málað árið 1955 af mið­aldra hol­lenskum mál­ara sem þá var reyndar fluttur til Banda­ríkj­anna. Verkið er kallað Interchange en hver mál­aði það?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Minn­ea­polis.

2.   Rashford.

3.   Þórdís Kolbrún.

4.   Boris Johnson.

5.   Á Yucatan-skaga í Mexíkó. Hins vegar dugar „Mexíkó“ ekki eitt og sér og heldur ekki „Mexíkó-flói“..

6.   Tik tok.

7.   Hann var prestur.

8.   Obama.

9.   Bretar her­námu Ísland.

10.   Þjóð­verjar gerðu árás í vest­ur­átt — inn í Holland, Belgíu, Lux­emburg og Frakk­land. Ekki þarf að telja upp öll löndin, það dugar að vita af árás þýskra herja í vestur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leonardo da Vinci mál­aði efra verkið, Salvator mundi, eða Frelsara heims­ins.

Willem de Kooning (1904-1997) mál­aði neðra verkið.

***

Hér er aftur hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár