326. spurningaþraut: Hver birtist 37 sinnum í sínum eigin myndum?

Hafirðu misst af þraut­inni í gær, þá er hún hér.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að ofan, ögn yngri en hún er núna?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Samsung heitir tækni­fyr­ir­tæki sem fram­leiðir meðal ann­ars far­síma. Í hvaða landi er Samsung upp­runnið?

2.   Í ágúst 1969 var haldin víð­fræg tón­list­ar­há­tíð í New York-ríki í Banda­ríkj­unum. Hún er kennd við jörð­ina þar sem hátíðin fór fram. Hvað kall­ast hún?

3.   Leik­stjóri einn birt­ist 37 sinnum í sínum eigin bíó­myndum, en þó aðeins í örfáar sek­úndur í hvert sinn og oft­ast tóku áhorf­endur ekk­ert eftir honum. Hver er þessi leik­stjóri?

4.   Hver lék Mary Poppins í bíó­mynd­inni frá 1964?

5.   Árlegur úrslita­leikur í hinum svo­kall­aða amer­íska fót­bolta fór að þessu sinni fram 7. febr­úar. Hvað kall­ast þessi úrslita­leikur?

6.   Að þessu sinni sigr­aði liðið Tampa Bay Buccaneers örugg­lega í þessum leik og leik­stjórn­andi liðs­ins skráði nafn sitt í sögu­bækur þess­arar íþróttar. Hann er orð­inn 43 ára gam­all en var val­inn besti leik­maður úrslita­leiks­ins. Hvað heitir hann?

7.   Í hvaða landi er dag­blaðið Politi­ken gefið út?

8.   Maður nokkur hefur víða komið við, verið blaða­maður og rit­stjóri, for­stjóri fjöl­miðla­fyr­ir­tækis og fleira, en  er nú einn helsti for­kólfur hins nýja Sós­í­alista­flokks. Hvað heitir hann?

9.   Í rúmar tvær aldir — frá um það bil 1550 og langt fram á 18. öld — var eitt víð­lendasta ríki Evrópu sam­bands­ríki Póllands og ... hvaða ríkis?

10.   Hvað hét goð­inn sem sagður hafa ákveðið á Alþingi að Íslend­ingar skyldu taka upp kristni svo ekki kæmi til borg­ara­styrj­aldar í land­inu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða vin­sælu scifi sjón­varps­þáttum og bíó­myndum ber þetta geim­far reglu­lega fyrir sjónir?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Suður-Kóreu.

2.   Woodstock.

3.   Hitchcock.

4.   Julie Andrews.

5.   Super Bowl, Ofur­skálin.

6.   Tom Brady.

7.   Danmörku.

8.   Gunnar Smári.

9.   Litháens.

10.   Þorgeir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá söng­kon­una Madonnu unga að árum.

Á neðri mynd­inni er USS Enter­prise úr Star Trek-þáttum og myndum.

***

Hlekkur á síð­ustu þraut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár