325. spurningaþraut: Næstlengsta áin á Íslandi, og fleira

325. spurningaþraut: Næstlengsta áin á Íslandi, og fleira

Hér er þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing, hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Íran?

2.   Páll post­uli hét öðru nafni áður en hann gekk til liðs kristna menn. Hvað var hann nefndur?

3.   Leikkona ein banda­rísk hlaut fleiri Ósk­arsverð­laun fyrir leika­frek en nokkur annar eða fjögur. Konan lést 2003, 96 ára. Hvað hét hún?

4.     Margrét Lára Við­ars­dóttir marka­drottn­ing íslenska lands­liðs­ins í fót­bolta fædd­ist í Vest­manna­eyjum og hóf fer­ill sinn hjá ÍBV. Hún spil­aði svo með einu öðru íslensku liði og auk þess liðum bæði í Svíþjóð og Þýska­landi. Hvaða íslenska liði spil­aði Margrét Lára með, auk ÍBV?

5.   Hver skrif­aði bók­ina Veröld sem var?

6.   Tveir tón­list­ar­menn létu mjög að sér kveða í raf-, dans-, house-, funk-, teknó-, diskó-, indí- og popptón­list. Þeir köll­uðu sig Daft Punk. Frá hvaða landi komu þeir?

7.   Elenóra af Akvit­aníu var frönsk her­toga­dóttir sem gift­ist fyrst Loðvík 7. kon­ungi Frakk­lands en skildi við hann og gift­ist þá Hinriki 2. Eng­lands­kon­ungi. Hún var móðir Eng­land­s­kóng­anna Ríkarðar ljóns­hjarta og Jóhanns land­lausa. Hún var ein aðal­per­sónan í kvik­mynd­inni Lion in Winter frá 1968 sem þótti einkar fín mynd. Hver lék Elenóru þar?

8.   En hver lék eig­in­mann hennar Hinrik 2.?

9.   Þegar hefur verið spurt á þessum vett­vangi um hver er lengsta á á Íslandi og reynd­ist það vera Þjórsá. En hver er næst­lengst?

10.   Í hvaða landi er for­sæt­is­ráð­herr­ann Benjamin Net­anyahu?

***

Seinni auka­spurn­ing, úr hvaða kvik­mynd er þetta skjá­skot?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Teheran.

2.   Sál.

3.   Katherine Hepburn.

4.   Val.

5.   Stefan Zweig.

6.   Þeir eru franskir.

7.   Katherine Hepburn.

Katherine Hepburn og Peter O'Tooleí hlut­verkum sínum í mynd­inni Lion in Winter.

8.   Peter O'Toole.

9.   Jökulsá á Fjöllum.

10.   Ísrael.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ásmundur Sveins­son mynd­höggv­ari.

Schwarzenegger/Term­inator

Neðri myndin sýnir hins vegar Arnold Schwarzenegger í hlut­verki sínu í kvik­mynd­inni The Term­inator.

***

Og hér er þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár