296. spurningaþraut: Nú þarf að þekkja óvenju mikið af filmstjörnum

Þrautin frá því í gær, hér er hlekkur á hana!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða mæðgur eru hér í búð­ar­ferð? Og já, þið þurfið að hafa bæði nöfnin rétt!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir rúss­neski stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn sem nýlega var hand­tek­inn við kom­una við Rúss­lands eftir að hafa orðið fyrir eit­urárás?

2.   En hvað hét rúss­neski stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn sem var skot­inn til bana á brú einni í Moskvu árið 2015 rétt í þann mund að hann hafði hvatt til mót­mæla gegn stríðs­rekstri Rússa í Úkraínu?

3.   Notkun á Beaufort-skala hefur dreg­ist saman að und­an­förnu, en var áður mjög útbreidd. Hvað var mælt á Beaufort-skala?

4.   Hver söng lagið In the Ghetto svo að eftir var tekið?

5.   Hvað þýðir orðið örfirisey?

6.   Hvaða flug­freyja eða flug­þjónn hefur orðið ráð­herra á Íslandi?

7.   Hvar í Banda­ríkj­unum er borgin Honolulu?

8.   Ein fræg­asta film­stjarna heims­ins er fædd í Honolulu. Film­stjarna þessi er þó ekki banda­rísk þótt hún hafi leikið í ótelj­andi banda­rískum myndum. Fyrsta myndin sem film­stjarna þessi lék í var ástr­alska myndin Bush Christmas sem fjallar um fjöl­skyldu sem treystir á að veð­hlaupa­hestur hennar bjargi fjár­hagnum. Hvað heitir film­stjarna þessi?

9.   Einn Banda­ríkja­for­seti er fæddur í Honolulu. Hver mundi sá hafa verið?

10.   Geimför streyma nú til reiki­stjörn­unnar Mars sem heitir — eins og allir vita — eftir róm­verska stríðs­guð­inum. En hvað hét gríski stríðs­guð­inn sem Mars var að hluta byggður á?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða alþjóð­lega film­stjarna hik­aði ekki við að koma fram í þessum skemmti­lega bún­ingi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Navalny.

2.   Nemtsov.

3.   Vindstig, vind­styrkur.

4.   Elvis Presley.

5.   Eyja sem tengd er við land með tanga, sem fer undir sjó á flóði.

6.   Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir.

7.   Á Havaí-eyjum.

8.   Nicole Kidman.

9.   Obama.

10.   Ares.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru Isabella Rossil­ini og Ingrid Bergman.

Á neðri mynd­inni er Sean sál­ugi Connery.

***

Og hér er hlekkur á hana, þraut­ina frá því í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár