295. spurningaþraut: „Og nú vinna smádjöflar á mér“

Jæja, þá er það fyrst hlekkur á þraut­ina frá í gær. Hér er hann.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver gaf öllum vinum sínum karton af Chesterfield í jóla­gjöf, að minnsta kosti ef eitt­hvað var að marka þessa aug­lýs­ingu?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða ár kom Coca Cola fyrst á markað: 1886, 1896, 1906 eða 1916?

2.   Í Bibl­í­unni segir meðal ann­ars frá því að Ísra­els­menn voru her­leiddir til ... ja, til hvaða borgar voru þeir fluttir?

3.   Í hvaða landi er borgin Turku?

4.   Árið 1986 sendi kvenna­hljóm­sveitin Bangles frá sér lag sem varð geysi vin­sælt. Það fjall­aði um hvernig á að ganga í stíl ... hverra?

5.   Hvaða eyja skipt­ist í tvennt milli sjálf­stæðs ríkis í suðri og svo ann­ars svæðis í norðri sem er í orði kveðnu líka sjálf­stætt ríki, en það er þó aðeins eitt annað ríki sem við­ur­kennir það?

6.   Fyrir hvaða flokk situr Oddný Harð­ar­dóttir á Alþingi Íslend­inga?

7.   Hver mælti, þegar hart var sótt að honum í Örlygs­staða­bar­daga: „Og nú vinna smá­djöflar á mér?“

8.   Carl Barks hét teikn­ari einn banda­rískur. Hvað var hann frægur fyrir að teikna?

9.   Hver söng lagið Please Don't Hate Me?

10.   Íslensk leik­kona fór með tölu­vert stórt hlut­verk í sjón­varps­þátta­röð­inni Djöflar Da Vincis eða Da Vinci's Devils árin 2013-2015. Árið 2019 lét hún svo í annarri þátta­röð í útlöndum, sú heitir See. En hvað heitir leik­konan?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr er á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   1886.

2.   Babýlon.

3.   Finn­landi.

4.   Egifta.

5.   Kýpur.

6.   Sam­fylk­ing­una.

7.   Sturla Sig­hvats­son.

8.   Andrés Önd.

9.   Lay Low.

10.   Hera Hilmar, Hilm­ars­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ing­unum tveim.

Á efri mynd­inni má líta Ronald Reagan aug­lýsa sígar­ettur

Á neðri mynd­inni er sækýr.

***

Og jæja, þá er það að lokum hlekkur á þraut­ina frá í gær. Hér er hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár