293. spurningaþraut: Frelsisstyttan, lotukerfið, brynvangar og Sigrit Ericksdóttir

Hæhó. Hér er þrautin frá gær­deg­inum.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Fyrir réttum 40 árum var frægt blokka­hverfi í borg einni rifið niður. Þar hafði búið fátækt fólk um langt skeið. Þetta þótti merki­legur atburður og hljóm­sveit tróð meira að segja upp þegar nið­ur­rifið hófst. Í hvaða borg gerð­ist þetta?

***

Hér eru aðal­spurn­ing­arnar:

1.   Hver er eini fugl­inn sem getur flogið aftur á bak?

2.   Senātus Rōmānus var einu sinni áhrifa­mikil stofnun og hefur ljáð nafn öðrum áhrifa­miklum stofn­unum. En hvað var Senātus Rōmānus?

3.   Hver lék Sigrit Ericksdóttir í kvik­mynd Will Farrels um Eurovision þátt­töku Íslend­inga?

4.   Hvað heitir næst­lengsta hvala­teg­und heims­haf­anna á eftir steypireyði?

5.   Hvaða þjóð gaf Banda­ríkja­mönnum Frels­is­stytt­una?

6.   Í hinu svo­nefnda „lotu­kerfi“ er raðað upp ... hverju?

7.   Inn af hvaða flóa gengur Hrúta­fjörður?

8.   Hvaða fyr­ir­bæri eru bryn­vangar?

9.   Árið 1955 tók banda­ríski flot­inn í notkun kaf­bát­inn USS Nautilus. Báturinn varð frægur þremur árum seinna þegar hann sigldi undir ísinn á norð­ur­pólnum en tækni­lega séð var kaf­bát­ur­inn líka mjög merki­legur, því hann var fyrsti kaf­bátur sög­unnar sem var ... hvað?

10.   Hvernig dýr var hin fyrsta Auðhumla?

***

Seinni auka­spurn­ing er ein­föld: Hvaða fjall má sjá á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kólíbrí­fugl.

2.   Öld­unga­ráðið í Rómaborg.

3.   Rachel McAdams.

4.   Lang­reyður.

5.   Frakkar.

6.   Frum­efnum.

7.   Húnaflóa.

8.   Fiskar. Til þeirra telj­ast meðal ann­ars kar­far og hrogn­kelsi.

9.   Kjarn­orkuknú­inn.

10.   Kýr.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Það var í Dublin á Írlandi sem Sum­mer­hill-blokk­irnar voru rifnar niður 1981. Þið áttuð vita­skuld að fatta það með því að bera kennsl á The Edge, gít­ar­leik­ara Dublin-hljóm­sveit­ar­innar U2. Hér má sjá hljóm­sveit­ina alla:

Fjallið á neðri mynd­inni er Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku.

***

Hér er gær­dags­þrautin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár