292. spurningaþraut: Jane Porter, Zeppelin, Vinterberg, Ali Rıza oğlu Mustafa ... þetta fólk og fleira

292. spurningaþraut: Jane Porter, Zeppelin, Vinterberg, Ali Rıza oğlu Mustafa ... þetta fólk og fleira

Hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er ungi mað­ur­inn sem sést hér að ofan með mömmu sinni?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvert er aðal­starf Höllu Bergþóru Björns­dóttur?

2.   Þegar Ísland var hernumið í síð­ari heims­styrj­öld tók erlendur her yfir hús sem lengi hafði verið í bygg­ingu, svo enn dróst að full­klára húsið. Það var loks tekið í notkun 1950. Hvaða hús var þetta?

3.   Ásgerður Hall­dórs­dóttir gegnir ábyrgð­ar­miklu starfi í sveit­ar­fé­lagi einu. Hvað er starfið?

4.   Jane Porter hét stúlka ein banda­rísk, faðir hennar var pró­fess­or­inn Archimedes Q. Porter en af móður hennar fer fáum sögum. Ungfrú Porter lenti í mik­illi lífs­hættu á ferða­lagi ung að árum, en var bjargað á síð­ustu stundu og raunar oftar en einu sinni. Hún gift­ist bjarg­vætti sínum og sett­ist að á hans afskekktu heima­slóðum, þótt hjónin kynnu reyndar líka vel við sig innan um breskt hefð­ar­fólk. Hjónin eign­uð­ust einn son sem hét Jack en var þó oftar kall­aður Korak. Hvað hét bjarg­vættur og eig­in­maður Jane Porter?

5.   Hvað þró­aði þýski greif­inn Ferdin­and von Zeppelin?

6.   Hvað hét trommu­leik­ar­inn í hljóm­sveit­inni Led Zeppelin?

7.   Í hvaða á er hinni eini sanni Gullfoss?

8.   Thomas Vinter­berg heitir Dani einn. Hvað fæst hann við í líf­inu?

9.   Auður Auðuns, Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir. Þetta eru kon­urnar sem hafa verið borg­ar­stjórar í Reykja­vík. Og þó, það vantar eina. Hver er sú?

10.   Árið 1881 var gríska borgin Þessa­lóníka hluti af Tyrkja­veldi. Þá fædd­ist þar piltur sem hét í upp­hafi Ali Rıza oğlu Mustafa. Þegar hann byrj­aði í skóla gaf reikn­ings­kenn­ar­inn hann honum að auki nafnið Kemal („full­komnun“ eða „þroski“) af því hann var svo dug­legur að reikna. Enn síðar þegar hann var far­inn að berj­ast til æðstu valda tók hann sér sjálfur enn annað nafn. Hvað var það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fáni er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hún er lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

2.   Þjóð­leik­húsið.

3.   Hún er bæj­ar­stjóri Sel­tjarn­ar­ness.

4.   Tarzan.

5.   Loftskip.

6.   Bonham.

7.   Hvítá.

8.   Hann er kvik­mynda­leik­stjóri.

9.   Steinunn Valdís.

10.   Ataturk.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Ungi pilt­ur­inn á efri mynd­inni er Jorge Mario Bergoglio sem nú kall­ast Frans og vinnur sem páfi.

Á neðri mynd­inni er fáni Mexíkó.

***

Og hlekkur á þraut gær­dags­ins!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár