291. spurningaþraut: Hver ferðaðist um Evrópu undir dulnefni og hverjum giftist Aisha?

291. spurningaþraut: Hver ferðaðist um Evrópu undir dulnefni og hverjum giftist Aisha?

Hérna er þrautin frá því í gær, þegar spurt var um upp­hafs­orð frægra skáld­sagna.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér má sjá unga stúlku sem nú er ein fræg­asta per­sóna heims­ins í sinni grein. Hvað heitir hún? — og tekið skal fram að hér dugar það nafn sem hún hefur tekið sér sjálf.

***

1.   Árið 1697 fór evr­ópskur þjóð­ar­leið­togi í mikið ferða­lag um mörg Evr­ópu­lönd til að kynna sér ástandið þar, iðnað, lífs­hætti og fleira. Svo átti að heita sem hann ferð­að­ist undir dul­nefni, en reyndar vissu nú allir hver þarna var á ferð. Ferða­lagið stóð í eitt og hálft ár og þegar hann kom aftur heim tók hann ærlega til hend­inni. Hvað hét hann?

2.   Í hvaða landi er borgin Vigo?

3.   Fljót eitt á Íslandi heitir Bergvatns­kvísl þar sem það kemur upp en skiptir um nafn er neðar dregur og heitir að lokum ... hvað?

4.   Hver var fjár­mála­ráð­herra á Íslandi 1991 til 1999?

5.   Kona ein hét Aisha. Á full­orð­ins­árum þótti hún heil­mik­ill skör­ungur, fróð, for­vitin og vel að sér á mörgum sviðum, svo sem í ljóð­list, lækn­is­fræði og fleiru. Hins vegar hefur athygli manna upp á síðkastið líka beinst að því að hún er sögð hafa verið aðeins níu eða tíu ára þegar hún gekk í hjóna­band með rúm­lega fimm­tugum karli, þótt ögn sé aldur hennar umdeildur. Hvað hét eig­in­maður Aishu?

6.   Í hvaða landi er borgin Auckland?

7.    Hvað eru margir strengir í venju­legri fiðlu?

8.   Hvað heitir leið­togi Norður-Kóreu fullu nafni?

9.   Hvaða ár varð kjarn­orku­slysið í Chernobyl?

10.   Robert Zemeckis heitir banda­rískur kvik­mynda­leik­stjóri sem gerði á árunum 1985-1990 þrjár geysi vin­sælar bíó­myndir sem hétu Back to the Future I-III. Fjórum árum eftir að sú síð­asta var frum­sýnd þá sendi  Zemeckis hins vegar frá sér sína lang fræg­ustu kvik­mynd, og fékk meðal ann­ars Ósk­arsverð­laun sem besti leik­stjór­inn það ár. Hvaða mynd var þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi leik­kona?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Pétur, kall­aður mikli.

2.   Á Spáni.

3.   Þjórsá.

4.   Friðrik Soph­us­son.

5.   Múhameð spá­maður.

6.   Nýja Sjáland.

7.   Fjórir.

8.   Kim Jong-un.

9.   1986.

10.   Forrest Gump.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Lady Gaga.

Á neðri mynd­inni er Margrét Helga.

***

Og hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár