290. spurningaþraut: Upphafsorð frægra skáldsagna

290. spurningaþraut: Upphafsorð frægra skáldsagna

Hér er hlekkur á þraut­ina síðan í gær.

***

Allar spurn­ingar dags­ins snú­ast um upp­hafs­setn­ingar frægra skáld­sagna. Tekið skal fram að þar sem það á við hef ég sjálfur þýtt setn­ing­arnar sem teknar eru úr erlendum bókum. En auka­spurn­ing­arnar sýna fræga rit­höf­unda.

Á mynd­inni hér að ofan er banda­rískur rit­höf­undur sem hefur notið mik­illa vin­sælda all­langa hríð en hefur hins vegar kannski ekki talist mjög virtur höf­undur, þannig séð. Á því er að verða breyt­ing því gríð­ar­lega vin­sæl Netflix-sería að nafni Bridgerton hefur nú aukið vin­sældir og virð­ingu höf­und­ar­ins enn frekar — því Bridgerton er gerð eftir sögum hennar. En hvað heitir höf­und­ur­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða skáld­saga hefst á þessa leið? — „Einhvers staðar í La Mancha hér­aði, á stað sem ég nenni ekki að muna hvað heitir, þar bjó herra­maður einn fyrir ekki svo löngu, einn af þessum körlum sem eiga lensu og gamlan skjöld og hor­aða bikkju og fót­fráan mjó­hund.“

2.   Hvaða saga hefst svo? — „Þegar Gregor Samsa rumskaði af óró­legum draumum ein­hvern morg­un­inn upp­götv­aði hann að hann hafði breyst í risa­stóra pöddu.“

3.   „Mörður hét maður er kall­aður var gígja.“ — Hvaða saga byrjar á þessa leið?

4.   En hvaða langa og dramat­íska skáld­saga hefst svo? — „Ham­ingju­samar fjöl­skyldur eru allar eins, en óham­ingju­samar fjöl­skyldur eru óham­ingju­samar hver á sinn hátt.“

5.   En hvaða bók byrjar hins vegar á þessa leið? —  „Vitur maður hefur sagt að næst því að missa móður sína sé fátt holl­ara úngum börnum en missa föður sinn."

6,   Hvaða óhugn­an­lega saga hefst svo? — „Það var bjartur og kaldur dagur í apríl og klukk­urnar slógu þrettán.“

7.   „Sú var tíð, segir í bókum, að íslenska þjóðin átti aðeins eina sam­eign sem metin varð til fjár.“ — Í hvaða bók segir svo?  

8.   Einn heil­mik­ill doðrantur byrjar á þess­ari stuttu setn­ingu. — „Kallið mig Ísmael.“ Hvað heitir sá doðrantur?

9.   Og þetta létt­úð­uga upp­haf, hvar er það að finna? — „Það er sann­leikur hvar­vetna við­ur­kenndur að ein­hleypan mann, sem er vel stönd­ugur, hann hlýtur að vanta eig­in­konu.“

10.   Hér dugar að nefna bóka­flokk. — „Herra og frú Dursley á Privet Drive númer fjögur upp­á­stóðu ævin­lega stolt í bragði að þau væru ósköp venju­legt fólk.“

***

Seinni auka­spurn­ing:

Karlinn hér að neðan var afar vin­sæll á 19. öld og er svo sem enn. Hvað hét hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum eru hér að neðan. Ekki er nauð­syn­legt að þekkja höf­undana, þótt nöfn þeirra fylgi hér með (í 9 til­fellum af 10).

1.   Don Kíkóti eftir Cervantes.

2.   Ham­skiptin (Meta­morphosis) eftir Kafka.

3.   Njáls­saga.

4.   Anna Karenina eftir Tolstoj.

5.   Brekku­kotsann­áll eftir Halldór Laxness.

6.   1984 eftir Orwell.

7.   Íslands­klukkan eftir Halldór Laxness.

8.   Moby Dick eftir Melville.

9.   Hroki og hleypi­dómar (Pride and prejudice) eftir Jane Austen.

10.   Þetta er upp­haf fyrstu Harry Potter-bók­ar­innar, Harry Potter og visku­steinn­inn, eftir J.K.Rowling. Það dugar sem sé að nefna Harry Potter.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á eftir mynd­inni er Julia Pott­in­ger, sem er þó mun þekkt­ari undir höf­und­ar­nafni sínu Julia Quinn.

Á neðri mynd­inni er Charles Dickens.

***   

Hér er aftur hlekkur á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár