283. spurningaþraut: „Ég elska lyktina af napalmi á morgnanna“

Þrautin síðan síð­ast.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan er til­bún­ingur lista­manns, en hvar er hug­myndin að atburðir séu að ger­ast?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir menn­ing­ar­húsið á Akureyri?

2.   Með hvaða fót­bolta­fé­lagi spilar brasil­íski fram­herj­inn Neymar?

3.   Í nor­rænni goða­fræði er fjöt­ur­inn Gleipnir búinn til svo hægt sé að binda Fenris­úlf. Fjöt­ur­inn er gerður úr skeggi kon­unnar, rótum bjargs­ins, sinum bjarn­ar­ins, anda fisks­ins, af fugls hráka ... og einu enn. Hvað er það?

4.   Hver skrif­aði um ung­frú Marple?

5.   Elín Sif Hall­dórs­dóttir og Lára Jóhanna Jóns­dóttir léku eft­ir­minni­lega aðal­hlut­verkin í nýlegri íslenskri kvik­mynd. Hvað nefn­ist myndin?

6.   Hvað heitir táin á Langa­nesi?

7.   Sölvi Blöndal er tón­list­ar­maður sem gerði garð­inn frægan um alda­mótin síð­ustu þegar hann var einn helsti for­sprakki vin­sællar hljóm­sveitar, er naut umtals­verðra vin­sælda bæði hér og erlendis, svo sem í Japan. Hvað hét hljóm­sveitin?

8.   Hvað heitir höf­uð­borg Indlands?

9.   „Ég elska lykt­ina af napalmi á morgn­anna“ - „I love the smell of napalm in the morn­ing.“ Þessi setn­ing kemur fram í ákveð­inni bíó­mynd og hljómar óneit­an­lega hryss­ings­lega þar sem napalm er nátt­úr­lega stór­hættu­legt íkveikju­efni. Um hvaða bíó­mynd er að ræða?

10.   Tíma­þjóf­ur­inn var skáld­saga sem kom út á Íslandi 1986 og hefur notið mik­illa vin­sælda síðan. Hver er höf­undur bók­ar­inn?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hof.

2.   Paris Saint Germain.

3.   „Dyn katt­ar­ins.“ Ég hef ákveðið að gefa líka rétt fyrir „fóta­tak katt­ar­ins“.

4.   Agatha Christie.

5.   Lof mér að falla.

6.   Fontur, Font­ur­inn.

7.   Quarashi.

8.   Delhi eða Nýja Delhí — hvorttveggja telst rétt.

9.   Apocalypse Now.

10.   Steinunn Sig­urð­ar­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir Tróju­menn eftir að þeir hafa dröslað „Tróju­hest­inum“ inn í borg sína. Rétt svar er sem sé — Trója.

Á neðri mynd­inni er Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir.

***

Þrautin frá því í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár