281. spurningaþraut: Maraþon-hlaup, vinsæll glæpasagnahöfundur og margt annað

281. spurningaþraut: Maraþon-hlaup, vinsæll glæpasagnahöfundur og margt annað

Hlekkur á þraut­ina frá því í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða höf­uð­borg má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað hét list­inn sem sigr­aði í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Reykja­vík árið 1994?

2.   Kristín Völ­und­ar­dóttir stýrir til­tek­inni stofnun, þótt hún hafi oft orðið fyrir harðri gagn­rýni. Hvaða stofnun er það?

3.   Henry Thomas heitir banda­rískur leik­ari sem lék aðal­hlut­verkið — eða alt­ént eitt af aðal­hlut­verk­unum — í mjög vin­sælli kvik­mynd árið 1982. Hann var þá alveg óþekktur og margir héldu að nú yrði leið hans á topp­inn í filmu­brans­anum greið. Svo fór reyndar ekki. Hann hefur átt ágætan feril en ekki stór­kost­legan, og þessi gamla mynd — sem snýst um að per­sóna Thomas eign­ast nýjan vin — er og verður hans eft­ir­minni­leg­asta. Hver er myndin?

4.   Hvað var leik­stjóri þeirrar myndar?

5.   Hvaða fljót fellur um París?

6.   Leik­rita­höf­und­ur­inn Lars Norén lést nýlega úr Covid-19, rúm­lega sjö­tugur, en hann þótti einn helsti leik­rita­höf­undur Evrópu síð­ustu ára­tuga. Frá hvaða landi var Norén?

7.   Hversu langt er mara­þon-hlaup? Hér eru skekkju­mörk upp á rétt um það bil einn kíló­metra til eða frá.

8.   „Þeim var ég verst er ég unni mest.“ Hver sagði þetta aftur?

9.   Joe Biden núver­andi Banda­ríkja­for­seti fædd­ist í rík­inu Penn­syl­vaniu, en sat ára­tugum saman í öld­unga­deild banda­ríska þings­ins fyrir annað ríki — reyndar í næsta nágrenni við Penn­syl­vaníu. Hvaða ríki Banda­ríkj­anna er það?

10.   Robert Gal­braith heitir all vin­sæll glæpa­sagna­höf­undur á Bret­landi, sem hefur gefið út hálfan tug skáld­sagna þar sem einka­spæj­ar­inn Cormoran Strike leysir erfið saka­mál. Fljót­lega eftir að fyrsta bókin kom út 2013 varð á allra vit­orði að á bak við nafnið Robert Gal­braith leynd­ist annar höf­undur, sem óhætt er að segja að hafi verið sá vin­sæl­asti í heimi síðusta ald­ar­fjórð­ung­inn. Hver er Gal­braith í raun og veru?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er konan sem sést hér að neðan með pabba sínum?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Reykja­vík­ur­list­inn.

2.   Útlend­inga­stofnun.

3.   E.T.

4.   Spi­el­berg.

5.   Signa.

6.   Svíþjóð.

7.   Maraþon-hlaup er nákvæm­lega 42,195 kíló­metrar. Rétt telst því vera allt frá 41,2 til 43,2.

8.   Guðrún Ósvíf­urs­dóttir.

9.   Delaware.

10.   J.K.Rowling.

*** 

Svör við auka­spurn­ingum:

Borgin á efri mynd­inni er Stokk­hólmur.

Á neðri mynd­inni er Nancy Sinatra ásamt föður sínum Frank.

***

Og hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár