Val um sóttkví en ekki skimun er smuga inn í landið fyrir veiruna

Það er óásætt­an­legt að ekki hafi verið brugð­ist við og lögum breytt svo hægt sé að skylda fólk sem kemur til lands­ins í skimun við Covid-19 segir yfir­lög­reglu­þjónn. Dæmi eru um að fólk virði ekki fjórtán daga sótt­kví og það býr til leið fyrir veiruna inn í landið.

Mögu­leik­inn á að fara í fjórtán daga sótt­kví við komu til landsin er smuga fyrir Covid-19 veiruna inn í landið og sam­fé­lagið. Mörg til­felli eru um að fólk virði ekki sótt­kvínna Í tvígang hefur sótt­varn­ar­læknir reynt að fá heim­ild til að afnema þann mögu­leika en ekki gengið. Með auknum fjölda þeirra sem greinst hafa með svo­kallað breskt afbrigði veirunnar, sem er mun meira smit­andi en önnur, eykst hætta vegna þessa. Bregðast þarf skjótt við og breyta lögum til að heim­ildir séu til staðar til að skylda fólk í sýna­töku eða í sótt­kví í far­sótt­ar­húsi.

Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Sig­ur­geirs Sig­munds­sonar, yfir­lög­reglu­þjóns flug­stöðv­ar­deildar Lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum, á upp­lýs­inga­fundi land­læknis og almanna­varna í dag. Sig­ur­geir sagði að vel hefði verið fylgst með þeim hópi sem valið hafi fjórtán daga sótt­kví og margir þeirra ætli sér ekki að hlíta sótt­kvínni. Þannig hafi lög­reglu og toll­vörðum tek­ist að snúa stórum hópi fólks, yfir 200 manns, frá því að velja fjórtán daga sótt­kví og fara þess í stað í skimun. Í ljós hafi komið fjöl­mörg smit í þeim hópi. Sig­ur­geir til­greind að um fjöru­tíu manna hópur sem kom til lands­ins hefði harð­neitað því að fara í skimun, allt þar til landamæra­verðir hafi sjálfir greitt fyrir sýna­tök­una. Í ljós kom að á annan tug smita var að finna í hópnum. Alls hafi landamæra­vörðum tek­ist að koma í veg fyrir að um 600 smit bær­ust inn í landið.

Sig­ur­geir sagði óvið­un­andi að ekki væri búið að breyta sótt­varn­ar­lögum svo hægt væri að skikka fólk í sýna­töku. Nauð­syn­legt væri að bregð­ast hratt við og breyta lög­unum.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir lýsti áhyggjum sínum af auknum fjölda smita sem greinst hafa á landa­mær­unum að und­an­förnu. Einkum hefur hann áhyggjur af því að 33 hafa greinst með breska afbrigðið þar, og fjórir inn­an­lands, allir tengdir ein­stak­lingum sem greinst höfðu á landa­mær­unum.

Í ljósi þess að heil­brigð­is­ráðu­neytið telur að ekki sé laga­stoð fyrir til­lögum Þórólfs um að skikka alla í skimun við kom­una til lands­ins, eða að skikka þá sem ekki vilja fara í sýna­töku til að dvelja í fjórtán daga sótt­kví í far­sótt­ar­húsi, hefur Þórólfur lagt til við ráð­herra að þeir sem hingað til lands ferð­ist verði að fram­vísa nei­kvæðu Covid-19 prófi við upp­haf ferðar og aftur á landa­mær­unum. Prófið megi ekki vera eldra en 48 klukku­stunda gam­alt og engur að síður þurfi fólk að velja milli skimunar eða fjórtán daga sótt­kvíar. Hann bíður nú svara frá ráðu­neyt­inu.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár