Saman

Ásgerður Arn­ar­dóttir (1994)

Saman

Verkið sam­anstendur af mál­verki, teikn­ingum, skúlp­t­úrum og klipptum útprent­uðum ljós­myndum þvingað saman í eitt verk sem er síðan ljós­myndað. Ljós­myndin er síðan unnin í mynd­vinnslu­for­riti. Útgangs­punktur verks­ins er hug­myndin um flokkun lista­verka niður í list­miðla. Ég velti fyrir mér mik­il­vægi þess að flokka, hvort það breyti upp­lifun áhorf­and­ans ef hann er með­vit­aður um hvaða list­miðil ræðir hverju sinni. Í raun „týn­ist“ hver ein­asti list­mið­ill í gegnum vinnu­ferlið við gerð þessa verks og er loka­út­koman aðeins sýnd í einum list­miðli, raf­rænu prenti í þessu til­felli. Með þess­ari aðferð minni finnst mér eins konar sjón­blekk­ing mynd­ast. Eru þetta mörg verk eða er þetta eitt heild­stætt verk? er einnig spurn­ing sem vert er að velta fyrir sér. End­ur­tekn­ing er mik­il­vægur þáttur í verk­inu þar sem útprent­uðu ljós­mynd­irnar innan verks­ins eru af skúlp­t­úr­unum, teikn­ing­unum og mál­verk­inu saman. Verkið fjallar því í raun­inni dálítið um sjálft sig.

Um listamanninn

Ásgerður Arn­ar­dóttir (1994) lauk BA námi í mynd­list úr Lista­há­skóla Íslands vorið 2018. Hún vinnur þvert á miðla. Viðkvæm og mót­an­leg efni koma oft fyrir í verkum hennar og spilar hún gjarnan með næmni og spennu. List­sköpun hennar inni­heldur oft og tíðum margar til­raunir og rann­sóknir, sem bein­ast að alls kyns áferð, litum og mynd­bygg­ingu með því mark­miði að skapa nýja til­finn­ingu eða upp­lifun. Í vinnu­ferl­inu not­ast Ásgerður gjarnan við hluti/brot úr umhverf­inu sem fanga athygli hennar, sem hún síðan útfærir á alls kyns máta, not­andi ólíka miðla; hún tekur ljós­myndir, málar, teiknar, vinnur í staf­rænu formi og svo fram­vegis. Vinnu­ferlið ein­kenn­ist þannig af end­ur­tekn­ingu og vörpun ólíkra sjón­ar­horna. Ásgerður hefur sýnt á fjöl­breyttum stöðum, sem dæmi má nefna einka­sýn­ingu hennar í SÍM salnum í byrjun árs­ins 2019, Kaffi Laugalæk 2020 og í Listasal Mos­fells­bæjar sem lauk nú í júní á þessu ári.

Heima­síða: asger­dur­arnar.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gallerí Hillbilly

Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við fjögurra metra skepnu
MenningGallerí Hillbilly

Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við fjög­urra metra skepnu

Eftir 30 ár er Jón Baldur Hlíðberg kom­inn á þann stað sem hann er á núna. Þrátt fyrir að hafa dýpt tánum í mynd­list­ar­skóla sem ungur maður þá var eng­inn sem kenndi honum að teikna heldur hefur hann þurft að tína þetta upp úr götu sinni eftir því sem hann gengur um, það getur verið basl og maður verður að vera þol­in­móður, segir Jón Baldur. Hann kennir nú öðrum tækn­ina sem hann hefur þróað.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár